Verstappen vann sig upp úr sextánda sæti upp í það fyrsta í Brasilíu og hafði þar betur gegn helsta samkeppnisaðila sínum um heimsmeistaratitil ökuþóra, Lando Norris hjá McLaren.
Sigur Verstappen sér til þess að hann getur komið í veg fyrir alla möguleika Norris á því að verða heimsmeistari og þar með tryggja sér sjálfur heimsmeistaratitilinn sem yrði hans fjórði á ferlinum og sá fjórði í röð.
Hollendingurinn er nú með sextíu og tveggja stiga forystu á Norris í stigakeppni ökuþóra og að hámarki áttatíu og sex stig eru í pottinum fyrir hvern og einn ökuþór frá þessum tímapunkti til loka tímabils. Tuttugu og sex stig er hægt að fá að hámarki á hverri keppnishelgi af þeim þremur sem eru eftir að viðbættum að hámarki átta stigum úr sprettkeppni sem er hluti af keppnishelgi Formúlu 1 í Katar.
Til þess að Verstappen geti tryggt sér heimsmeistaratitilinn í Las Vegas mun hann þurfa að sjá til þess að bilið milli sín og Norris standi í sextíu stigum eða meira að keppni lokinni og að því markmiði eru nokkrar leiðir.
Verstappen verður heimsmeistari ef hann endar kappaksturinn í Las Vegas á undan Norris. Fari svo að báðir ökuþórar myndu enda fyrir utan stigasæti yrði Verstappen einnig meistari.
Þá gæti Verstappen orðið heimsmeistari þrátt fyrir að enda neðar en Norris í keppninni en mætti ekki tapa meira en tveimur stigum á Bretann.
Stigasæti í Formúlu 1
- sæti - 25 stig
- sæti - 18 stig
- sæti - 15 stig
- sæti - 12 stig
- sæti - 10 stig
- sæti - 8 stig
- sæti - 6 stig
- sæti - 4 stig
- sæti - 2 stig
- sæti - 1 stig
*Þá er eitt stig veitt fyrir hraðasta hring í keppni ef umræddur ökuþór sem setur þann tíma endar í einu af efstu tíu sætum keppninnar