Orri Steinn Óskarsson skoraði fyrir Real Sociedad í heimsókn til Viktoria Plzen í Tékklandi. Leiknum lauk þó með 2-1 sigri Plzen eftir óvænt sigurmark varamanns á lokamínútu venjulegs leiktíma.
Prince Kwabena Abu kom heimamönnum Plzen yfir í upphafi leiks. Markið var skorað með þéttingsföstu skoti á nærstöngina á 13. mínútu eftir stoðsendingu Pavel Sulc.
Gestirnir frá Sociedad voru þó mun hættulegri aðilinn, héldu betur í boltann og sköpuðu fleiri færi.
Orri Steinn jafnaði svo metin fyrir þá á 35. mínútu með fínni kollspyrnu sem hann fleytti í fjærhornið eftir fyrirgjöf Mikel Oyarzabal.
Áfram ógnuðu gestirnir meira en gekk illa að koma boltanum í netið þrátt fyrir margar tilraunir.
Þvert gegn gangi leiksins tókst heimamönnum svo að skora á lokamínútu venjulegs leiktíma.
Daniel Vasulin var þar á ferð, rétt eftir að hafa komið inn af varamannabekknum, og skoraði með sinni fyrstu snertingu.
Orri Steinn fékk fínt færi til að jafna leikinn aftur í uppbótartíma en náði ekki nægilega vel til boltans og hitti ekki á markið með skallanum.
Heimamenn héldu út og unnu 2-1. Þetta var þeirra fyrsti sigur eftir jafntefli í fyrstu þremur leikjunum. Sociedad er sömuleiðis með fjögur stig.