Handbolti

Blaða­manna­fundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu

Aron Guðmundsson skrifar
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari átti að opinbera EM hóp Íslands í dag
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari átti að opinbera EM hóp Íslands í dag Vísir/Viktor Freyr

Til stóð að að Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta myndi tilkynna EM hóp Íslands í höfuðstöðvum Icelandair núna klukkan tvö. Blaðamannafundinum var hins vegar aflýst á síðustu stundu.

Íþróttafréttamaður Stöðvar 2 og tökumaður biðu í ofvæni eftir því að blaðamannafundurinn myndi hefjast þegar að þeim var tilkynnt að fresta þyrfti honum um sólarhring. Þá var innan við hálftími þar til að fundurinn átti að hefjast. 

Hvers vegna fundinum var frestað er ekki vitað á þessari stundu og lítið um skýringar. Fulltrúar HSÍ vildu ekki tjá sig um ástæðuna fyrir því. Einungis að fundurinn myndi þess í stað fara fram á morgun.

Ísland hefur leik á Evrópumótinu þann 29.nóvember næstkomandi þegar liðið mætir Hollandi í fyrstu umferð riðlakeppninnar. Svo taka við leikir við Úkraínu og Þýskaland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×