Raforkuverð á heildsölumarkaði gæti hækkað um 25 prósent umfram verðlag
![Þegar það gerist að grunnorku þrýtur – framboðið af henni verður lítið eða ekkert á markaði – þá neyðast sölufyrirtækin til þess að kaupa mánaðarblokkir, sem er dýrari vara. Undir öllum eðlilegum kringumstæðum ætti sú hækkun að skila sér í verð til neytenda, að sögn sérfræðinga EFLU.](https://www.visir.is/i/8E283A32A6029293371B580C11FF545FE3FCF0CF3851B63C9DFF90AC0E640A73_713x0.jpg)
Útlit er fyrir að sölufyrirtæki með raforku þurfi að óbreyttu að kaupa mánaðarblokkir í auknum mæli á mun hærra verði en áður samhliða því að eftirspurnin eykst meira en framboð og spurningin er aðeins hversu mikið af því muni skila sér í verðhækkunum til heimilanna, að mati sérfræðinga EFLU. Þeir telja „litlar sem engar horfur“ á að það muni rýmkast um á raforkumarkaði á allra næstu árum og áætla að verðhækkanir á heildsölumarkaði á árinu 2025 verði á bilinu um 10 til 25 prósent umfram verðbólgu.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/8BABC66AAF648E53E98ABCDF7C57AB391C5A787EB5CF9EC9724A72BCB16FCA72_308x200.jpg)
Útboð sýnir að orkuverð mun hækka á næstu árum
Framvirka kúrfan sem teiknaðist upp í raforkuútboði í fyrr í mánuðinum sýnir „svo ekki verður um villst“ að orkuverð mun hækka á næstu árum. Raforkukerfið hér á landi er að óbreyttu fullselt til næstu ára, segir hagfræðingur.