Eng­lendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikk­lands

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ensku landsliðsmennirnir fagna fyrsta marki sínu í kvöld sem Ollie Watkins skoraði.
Ensku landsliðsmennirnir fagna fyrsta marki sínu í kvöld sem Ollie Watkins skoraði. Getty/Eddie Keogh

Englendingar komust á topp síns riðils í Þjóðadeildinni eftir 3-0 útisigur á Grikklandi í kvöld.

Grikkir unnu Englendinga á Wembley á dögunum en þeir ensku hefndu fyrir það tap í kvöld.

Það voru mikil forföll í enska landsliðinu í leiknum en það kom ekki að sök.

Ollie Watkins kom Englandi í 1-0 strax á sjöundu mínútu eftir stoðsendingu frá Noni Madueke.

Englendingar komust í 2-0 á 78. mínútu en markið er skráð sem sjálfsmark markvarðarins Odisseas Vlachodimos.

Jude Bellingham átti þá skot sem fór í stöngina og út en fór síðan af markverðinum og inn.

Curtis Jones hefur verið að gera góða hluti með Liverpool og hann skoraði þriðja markið á 83. mínútu eftir stoðsendingu frá Morgan Gibbs-White.

Góður sigur hjá enska landsliðinu og toppsæti riðilsins er þeirra.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira