Skoðun

Ís­land 2074

Kjartan Magnússon skrifar

Hvaða tungumál verður talað á Íslandi eftir 50 ár? Verða börnin okkar þá orðin minnihluti í eigin landi? Hvernig verða lífsgæði Íslendinga í aldarlok? Að öllu óbreyttu er ljóst að Íslendingar verða í minnihluta á Íslandi, en erfitt er að átta sig á hvort það gerist eftir 10 eða 50 ár. Sú stefna sem hefur valdið sprengingu í fjölda innflytjenda á þessari öld hefur aldrei notið stuðnings meirihlutans. Þvert á móti er margt sem bendir til þess að hér hafi verið farið illa með traust almennings. Fámennur en hávær hópur öfgamanna hefur með frekju og dónaskap komið í veg fyrir eðlilega umræðu um framtíð þjóðfélagsins. Miðflokkurinn hefur einn flokka staðið gegn slíkri skoðanakúgun frá fyrsta degi og í stað þess lagt til skynsamlegar umbætur í útlendingamálum. Ekki dugar að nema þar staðar, heldur þarf að endurskoða útlendingastefnu með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi, því það eru hagsmunirnir sem ráðamenn eiga að tryggja, þeirra skyldur eru við þjóðina en ekki alþjóðastofnanir eða þjóðir allra landa.

Ísland er heimkynni Íslendinga, ekki bara pláss fyrir fólk. Óskandi er að allir jarðarbúar eigi heimkynni, þar sem þeir eiga rætur og fjölskyldu. Heimkynni okkar hafa mótað okkur í 1150 ár og verið okkur harður herra. Þegar skyldan kallar jafnast fáar þjóðir á við Íslendinga í dugnaði, þrótti og alvöru. Vilji menn láta gott af sér leiða er hverri krónu margfalt betur varið í að hjálpa öðrum þjóðum við að ná sama árangri og íslenska þjóðin hefur náð en í að flytja þjakaðar þjóðir hingað. Í stað fjölda eigum við að einblína á gæði. Við skulum ekki vera hræddir við að velja og hafna hverjum við hleypum til landsins og gera kröfu um að þeir taki þátt í samfélaginu til að fá aðgang að hinu félagslega kerfi. Allt annað er gengisfelling á hugmyndinni um „velferðarsamfélag.“

Forsenda þess að afkomendur okkar eigi sér heimkynni eins og við

er að allir synir og dætur landsins hefji upp kyndil frjálsrar hugsunar. Haldi menn áfram að láta undan skoðanakúgurum samþykkja þeir að á Íslandi verði áfram sýndarlýðræði, þar sem opinberri umræðu er stjórnað af fámennum öfgahópum af slíkri hörku að þær leiða sjálfkrafa að „réttri“ niðurstöðu fyrir öfgamennina.

Hinn kosturinn er að hundsa ofríki þeirra og tilraunir um að fyrirskipa hvað við eigum að hugsa, segja og gera. Þannig hófst ítalska endurreisnin á 15. öld, er ungir menn vöknuðu af vitsmunalegum svefni hinna myrku miðalda. Í augum þeirra var frjáls hugsun forsenda umbóta, þeir kusu að ganga uppréttir og sóttu innblástur í gleymd og grafin rit Grikkja og Rómverja. Framtíðin er í höndum þeirra sem þora að feta í fótspor endurreisnarmanna. Áfram Ísland, X-M!

Höfundur er formaður Hjálms, ungliðahreyfingar Miðflokksins í Norðausturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×