Lífið

Um­breyttist í Guðna Ágústs­son og Ólaf Ragnar

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Lilja fór á kostum í þættinum.
Lilja fór á kostum í þættinum. Vísir/Vilhelm

Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknar segir að því fari fjarri að hún hafi ekki sterkar skoðanir þrátt fyrir að Framsókn sé á miðju stjórnmálanna. Lilja segir árin sem hún bjó í Kóreu hafa haft mikil áhrif á hana.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í tíunda þætti Af vængjum fram, þangað sem stjórnmálaleiðtogar mæta í aðdraganda kosninga og gæða sér á vængjum með sífellt serkari sósu. Þar tekur Lilja meðal annars sínar bestu eftirhermur og umbreytist hreinlega í Guðna Ágústsson og Ólaf Ragnar Grímsson.

Lilja er ekkert stressuð fyrir sósunum og segist elska að prófa nýja hluti. Lilja segir Framsóknarmenn öllu vana þegar komi að skoðanakönnunum og svarar hraðaspurningum þar sem spurning um Bændasamtökin kemur sérstaklega á óvart. Lilja nefnir líka þann þingmann sem hún væri mest til í að búa með og fer í störukeppni svo fátt eitt sé nefnt. 

Horfa má á eldri þætti úr seríunni á sjónvarpsvef Vísis og á Stöð 2 +.


Tengdar fréttir

„Þú varst að tala um Klausturmálið!“

Bergþór Ólason þingflokksformaður Miðflokksins segist hafa lært mikið af Klaustursmálinu. Ekki hafi verið rætt um það í lengri tíma en hann gerir engar athugasemdir við að það komi upp nú.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.