Innherji

Minni á­hersla á inn­lend hluta­bréf og vilja auka vægi er­lendra skulda­bréfa

Hörður Ægisson skrifar
Eftir erfið ár á innlendum hlutabréfamarkaði hefur ávöxtun byrjað að taka við sér seinni hluta ársins 2024 og skilað ásættanlegri ávöxtun það sem af er ári. LSR bendir á að væntingar um lækkandi raunvexti muni að öðru óbreyttu skila sér í hækkandi eignaverði hér á landi.
Eftir erfið ár á innlendum hlutabréfamarkaði hefur ávöxtun byrjað að taka við sér seinni hluta ársins 2024 og skilað ásættanlegri ávöxtun það sem af er ári. LSR bendir á að væntingar um lækkandi raunvexti muni að öðru óbreyttu skila sér í hækkandi eignaverði hér á landi. samsett

Tveir af allra stærstu lífeyrissjóðum landsins, langasamlega umsvifamestu fjárfestarnir á markaði, hafa sett sér þá stefnu fyrir komandi ár að draga heldur úr vægi innlendra hlutabréfa í eignasafni sínu á meðan áherslan verður meðal annars á að byggja upp stærri stöðu í erlendum skuldabréfum. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins segir að eftir erfið ár og verðlækkanir á íslenskum hlutabréfamarkaði þá megi samt vænta þess að tækifæri skapist fyrir langtímafjárfesta og meiri líkur séu á góðri ávöxtun til lengri tíma litið.


Tengdar fréttir

Ætlar að stór­auka vægi er­lendra skulda­bréfa sem eru „á­lit­legri kostur“ en áður

Einn stærsti lífeyrissjóður landsins hyggst bæta verulega við sig í erlendum skuldabréfum á árinu 2024 og telur að sá eignaflokkur sé orðin „mun meira aðlaðandi“ eftir langt tímabil af lágu vaxtastigi. Á móti áformar Lífeyrissjóður verslunarmanna að minnka vægi sitt í erlendum og innlendum hlutabréfum, samkvæmt nýrri fjárfestingastefnu sjóðsins, en hins vegar er útlit fyrir að Birta lífeyrissjóður muni auka lítillega við hlutfall sitt í hlutabréfum hérlendis frá núverandi stöðu.

Líf­eyr­is­sjóð­ir vilj­a að rýmk­að­ar heim­ild­ir eigi við um all­ar ó­skráð­ar eign­ir

Landssamtök lífeyrissjóða kalla eftir því að heimildir til þess að fjárfesta í óskráðum eignum verði rýmkaðar. Fjármála- og efnahagsráðherra er með frumvarp til umsagnar um að lífeyrissjóðir fái auknar heimildir til að fjárfesta í óskráðum fasteignafélögum á íbúðamarkaði en sjóðirnir vilja auka heimildina án tillits til kjarnareksturs.

„Var­huga­vert“ að fella líf­eyris­sjóði undir sama reglu­verk og gildir um banka

Tillögur Seðlabankans um að réttast sé að láta sama laga- og regluverk ná til starfsemi lífeyrissjóðanna og gildir um banka og tryggingafélög eru „varhugaverðar,“ að mati fulltrúa sjóðanna, enda hafi þeir meðal annars sérstöðu vegna aðkomu aðila vinnumarkaðarins ásamt því að vera með „ákveðið“ félagslegt hlutverk. Forseti ASÍ gagnrýnir „ásælni“ Seðlabankans í að hafa enn meiri áhrif á lífeyrissjóðakerfið og skipta sér af því hvernig staðið er að stjórnarkjöri í sjóðina.

Breytingar sem taka mið af öðrum veru­leika yrðu erfiðar og kostnaðar­samar

Verði farin sú leið að aðlaga regluverkið um starfsemi lífeyrissjóða að þeirri evrópsku löggjöf sem gildir um fjármálafyrirtæki, eins og Seðlabankinn hefur talað fyrir, þá mun það hafa í för með sér „verulega breytta hugmyndafræði“ og valda miklum viðbótarkostnaði, að mati framkvæmdastjóra eins af stóru lífeyrissjóðunum. Hann segir oft gleymast að líta til þeirra kosta sem fylgir því að standa utan löggjafar Evrópusambandsins, sem taki iðulega mið af öðrum veruleika, og varar jafnframt við tillögum um að Seðlabankinn fái heimildir til stjórnvaldssekta á lífeyrissjóði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×