Innlent

Net­sam­band komið á Skaga­strönd á undan á­ætlun

Kjartan Kjartansson og Lovísa Arnardóttir skrifa
Svo virðist sem að vatnavextir í Hrafná við Skagaströnd hafi valdið því að ljósleiðarastrengur Mílu fór þar í sundur.
Svo virðist sem að vatnavextir í Hrafná við Skagaströnd hafi valdið því að ljósleiðarastrengur Mílu fór þar í sundur. Vísir/Vilhelm

Viðgerð er lokið á ljósleiðarastrengnum sem tengir Skagaströnd við netið. Viðgerð lauk nokkrum klukkustundum á undan áætlun. Gert var ráð fyrir að henni myndi ljúka um klukkan þrjú en henni lauk rétt fyrir klukkan eitt. Strengurinn fór í sundur vegna vatnavaxta í Hrafná.

Upphaflega var áætlað að viðgerð á ljósleiðaranum tæki allt að átta klukkustundir. Atli Stefán Yngvason, samskiptastjóri Mílu, sagði rétt fyrir tólf að það tæki um sex tíma að laga bilunina. Rétt fyrir klukkan 13 var svo send tilkynning þar sem kom fram að viðgerð væri lokið og öll þjónusta komin í lag, vel á undan áætlun. 

Strengurinn fór í sundur í Hrafná. Atli Stefán segir að svo virðist sem hann hafi slitnað vegna vatnavaxta í ánni. Appelsínugul veðurviðvörun var á Norðurlandi vestra vegna sunnan storms í gær.

Fréttin var uppfærð þegar tilkynnt var að búið væri að laga bilunina klukkan 12:54 þann 9.12.2024.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×