Á vef borgarinnar hefur nú verið birtur listi yfir þá sem sóttu um stöðuna, en í hópi þeirra eru tveir fyrrverandi þingmenn, Jódís Skúladóttir sem sat á þingi fyrir Vinstri græn á nýliðnu kjörtímabili og Nichole Leigh Mosty sem sat á þingi fyrir Bjarta framtíð á árunum 2016 til 2017. Einnig er að finna Stein Jóhannsson, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, Hildi Elínu Vignir, framkvæmdastjóra Iðunar fræðsluseturs, og Arndísi Steinþórsdóttur, skrifstofustjóri grunnskólastarfs hjá borginni.
Fram kemur að fjórir umsækjendur hafi dregið umsóknir sínar til baka, en .Intellecta hefur umsjón með ráðningunni og hæfisnefnd hefur verið skipuð.
Umsækjendur eru:
- Arndís Steinþórsdóttir - Skrifstofustjóri
- Atli Arason - Verkefnastjóri
- Fannar Karvel - Framkvæmdastjóri
- Fizra Sattar - Kennari
- Guðlaug Erla Gunnarsdóttir - Skólastjóri
- Guðrún Björk Freysteinsdóttir - Deildarstjóri og staðgengill fagstjóra
- Gunnar Þorri Þorleifsson - Kennari
- Hildur Elín Vignir - Framkvæmdastjóri
- Hjördís Kristinsdóttir - Framkvæmdastjóri
- Joshua Fadaely-Sidhu - Rannsakandi í íþróttafræði
- Jódís Skúladóttir - Fyrrverandi þingmaður
- Nichole Leigh Mosty - Sérfræðingur með áherslu á verkefnastjórnun
- Ólafía María Gunnarsdóttir - Deildarstjóri
- Rúnar Sigríksson - Skólastjóri
- Salvör Sigríður Jónsdóttir - Viðskiptalögfræðingur
- Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir – Skólastjóri
- Steinn Jóhannsson – Rektor
- Xheida Gjata - Félagsráðgjafi