Snæfell tilkynnti þetta á heimasíðu sinni í kvöld.
Snæfell átti eftir einn leik fyrir jólafrí en mun ekki spila hann ekki frekar en aðra leiki sem liðið átti eftir í vetur.
Snæfell er í sjöunda sæti deildarinnar með tvo sigra og fimm töp. Síðasti leikurinn var 106-55 tap á móti KR 29. nóvember síðastliðinn.
Snæfell varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari á árunum 2014 til 2016 en hefur ekki spilað í efstu deild síðan vorið 2021.
Það haust dró Snæfell lið sitt úr keppni úr úrvalsdeildinni en spilaði áfram í 1. deildinni. Liðinu tókst tvisvar sinnum að komast alla leið í bikarúrslitin í Laugardalshöllinni þrátt fyrir að vera ekki í efstu deild.
Þetta er vissulega sorglegur endir fyrir kvennakörfuna í Stykkishólmi en aðalstjórn félagsins segir að nú sé tími skipulags og uppbyggingar innan yngri flokka félagsins. Við sjáum vonandi því kvennalið Snæfells spila aftur í kvennakörfunni.
Hér fyrir neðan má sjá tilkynningu frá Snæfelli:
- Kvennalið Snæfells dregið úr keppni
- Að vel ígrunduðu máli hafa stjórn kkd. Snæfells, Aðalstjórn félagsins og aðstandendur leikmanna ákveðið að draga liðið úr keppni í 1. deild kvenna frá og með deginum í dag, 11. desember. Stelpurnar munu því ekki leika síðasta leik sinn fyrir jólafrí sem átti að fara fram á laugardag.
- Nú hefst tími skipulags og uppbyggingar innan yngri flokka félagsins svo kvennalið Snæfells geti mætt af fullum krafti til leiks í framtíðinni. Snæfell þakkar stelpunum fyrir sitt framlag á leiktíðinni.