Viðskipti innlent

Nýr verk­efna­stjóri svæðis­bundins farsældarráðs

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Hanna Borg hefur störf 1. febrúar næstkomandi.
Hanna Borg hefur störf 1. febrúar næstkomandi. SSH

Hanna Borg Jónsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri farsældar á höfuðborgarsvæðinu. Hún mun leiða saman fagfólk sem vinnur að málefnum barna til þess að undirbúa svæðisbundið farsældarráð.

Í tilkynningu á vef Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu segir að með ráðningu í stöðu verkefnastjóra farsældar á höfuðborgarsvæðinu sé verið að framfylgja samningi við mennta- og barnamálaráðuneytið um ráðningu verkefnastjóra sem leiða muni undirbúning að stofnun svæðisbundins farsældarráðs sem undirritaður var 10. október 2024.

„Verkefnastjórinn mun vinna í nánu samstarfi við forsvarsmenn innleiðingar farsældarþjónustu í sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins og leiða saman það fagfólk sem vinnur að málefnum barna í því skyni að undirbúa svæðisbundið farsældarráð. Samningurinn er gerður til tveggja ára og markmiðið er að fyrir lok samningstímans hafi farsældarráð landshlutans tekið til starfa og að unnin hafi verið fyrsta áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða í þágu farsældar barna,“ segir í tilkynningunni.

Áður verkefnastjóri Barnvænna sveitarfélaga

Þar segir jafnframt að Hanna Borg hafi síðastliðin fjögur ár starfað fyrir UNICEF á Íslandi, sem verkefnastjóri Barnvænna sveitarfélaga UNICEF. Verkefnið snúist um markvissa innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna inn í stafesemi sveitarfélaga. Í gegnum verkefnið hafi hún starfað með þeim 23 sveitarfélögum sem að verkefninu koma.

„Hanna Borg skrifaði barnabókina „Rúnar góði“ en bókin sem kom út árið 2016 kynnir börn fyrir réttindum sínum samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þá kenndi hún í tvö ár námsgreinina Réttindasmiðju barna í 2.-7. bekk í Flataskóla sem er einn af réttindaskólum UNICEF. Þá kennir Hanna Borg réttindafræðslu í Flataskóla samhliða starfi sínu hjá UNICEF og kemur að kennslu í staðlotu diplómanáms um Farsæld barna hjá Háskóla Íslands,“ segir í tilkynningunni. 

Hanna Borg er með M.Ed. gráðu í kennslu samfélagsgreina frá menntavísindasviði Háskóla Íslands og meistarapróf í lögfræði frá sama háskóla. Þá er Hanna með LLM gráðu í mannréttindum frá University of London. Hún hefur störf 1. febrúar næstkomandi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×