Veður

Stíf norðan­átt og frost í flestum lands­hlutum

Atli Ísleifsson skrifar
Lægðin við Skotland fjarlægist í kvöld og nótt og fer þá að lægja hér og rofa til.
Lægðin við Skotland fjarlægist í kvöld og nótt og fer þá að lægja hér og rofa til. Vísir/Vilhelm

Við Skotland er nú öflug og dýpkandi lægð á norðausturleið, sem veldur stífri norðan- og norðvestanátt hér á landi í dag og hvössum vindstrengjum undir Vatnajökli.

Á vef Veðurstofunnar segir að það verði él á Norður- og Austurlandi, en annars yfirleitt bjartviðri. Áfram frost í flestum landshlutum, en sums staðar frostlaust úti við sjóinn.

„Lægðin við Skotland fjarlægist í kvöld og nótt og fer þá að lægja hér og rofa til. Ekki þó neinna rólegheita að vænta, en á fimmtudagsmorgun nálgast ný lægð úr suðvestri. Gengur því í austan- og suðaustanstrekkings eða allhvassan vind með snjókomu eða slyddu á morgun, en rigningu syðst og hlýnar smám saman í veðri. Yfirleitt mun hægara og úrkomulaust norðaustanlands. Snýst síðan í vestanátt með éljum, einkum vestantil á föstudag og kólnar aftur,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Hæg breytileg átt og skýjað með köflum, en gengur í suðaustan 10-18 m/s undir hádegi með snjókomu eða slyddu, en rigningu við ströndina, fyrst suðvestanlands. Frost 1 til 10 stig, en frostlaust syðst.

Á föstudag: Vestan og suðvestan 5-13 m/s, él og hiti í kringum frostmark, en bjart með köflum og frost 1 til 8 stig austantil. Lægir um kvöldið.

Á laugardag (vetrarsólstöður): Stíf norðanátt og snjókoma eða él norðvestantil, en mun hægari og úrkomulítið í öðrum landshlutum. Frost um land allt.

Á sunnudag: Útlit fyrir kalda norðvestanátt með éljum, en úrkomulítið sunnan heiða.

Á mánudag (Þorláksmessa): Gengur líklega í suðaustan hvassviðri með snjókomu eða slyddu og rigningu sunnanlands, en snýst í hvassa suðvestanátt með skúrum eða éljum síðdegis. Hlýnar í bili.

Á þriðjudag (aðfangadagur jóla): Lítur út fyrir hæga vinda, skýjað með köflum og stöku él, en kólnandi veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×