Arsenal valtaði yfir Crystal Palace

Siggeir Ævarsson skrifar
Gabriel Jesus skorar fyrsta mark leiksins og sitt fyrra mark af tveimur
Gabriel Jesus skorar fyrsta mark leiksins og sitt fyrra mark af tveimur vísir/Getty

Crystal Palace og Arsenal mættust í annað sinn á fjórum dögum í dag en liðin mættust einnig í deildarbikarnum og líkt og þá fór Arsenal með sigur af hólmi og Gabriel Jesus lét einnig mikið að sér kveða í dag eins og í bikarnum.

Jesus, sem skoraði þrennu í deildarbikarnum, kom gestunum yfir strax á 6. mínutu en Ismaïla Sarr jafnaði leikinn skömmu síðar. Jesus var svo aftur á ferðinni á 14. mínútu þegar hann skoraði eftir hornspyrnu og varð þar með fyrsti leikmaður Arsenal til að skora fimm mörk í röð síðan Robin van Persie gerði það árið 2011.

Palace voru mikið með boltann eftir markið en tókst ekki að skapa sér nein afgerandi færi. Kai Havertz kom Arsenal svo í 1-3 fyrir hálfleik, eftir að Jesus hafði skotið í stöngina. Þar með voru úrslit leiksins svo gott sem ráðin en Martinelli og varamaðurinn Declan Rice gerðu endanlega út um hann með sitt hvoru markinu.

Með sigrinum lyftir Arsenal sér upp í 3. sætið, stigi á eftir Chelsea sem á leik til góða. Palace er aftur á móti í 15. sæti, aðeins fjórum stigum frá fallsæti, en liðið hefur aðeins náð að vinna einn leik á heimavelli í vetur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira