Viðræður standa yfir milli Hafnarfjarðarbæjar og FH um að bærinn kaupi knatthúsið af FH. Bærinn ákvað í tengslum við þá ákvörðun að fá Deloitte til að gera úttekt á skiptingu framkvæmdakostnaðar og ráðstöfun fjármuna stjórnar FH við byggingu hússins.
Í skýrslunni sem var afhent fjölmiðlum á dögunum kom meðal annars fram að um fjörutíu prósent af byggingarkostnaði við Skessuna hefðu farið í greiðslur til formanns félagsins og fyrirtækja sem bróðir hans er í forsvari fyrir. Þá eru spurningar uppi um hvort að allt að 120-130 milljónir hafi verið réttilega færðar sem hluti af byggingarkostnaðinum.
Mikil umræða hefur skapast í kjölfarið á útgáfu skýrslunnar en deilur um uppbyggingu knatthúsa í bænum hafa verið áberandi í áratug. Þær hafa leitt til brottvikningar bæjarfulltrúa auk þess sem forsvarsmenn Hauka og FH hafa skotið föstum skotum hver á aðra í baráttu um stuðning bæjaryfirvalda við uppbyggingu.
Fyrrverandi bæjar- og varabæjarfulltrúar í Hafnarfirði skutu föstum skotum á Rósu í gær. Var hún hvött til að fara betur með opinbert fé í störfum sínum sem þingmaður en sem bæjarstjóri í Hafnarfirði.
„Sýnum stillingu,“ segir Rósa í færslu á Facebook.
„Það er dapurlegt að sjá þá óvægnu orðræðu og dómhörku sem sprottið hefur upp á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum síðustu daga vegna úttektar sem Hafnarfjarðarbær lét gera á skiptingu framkvæmdakostnaðar og ráðstöfun fjármuna stjórnar FH við byggingu á knatthúsinu Skessunni,“ segir Rósa.
„Úttektin var gerð til að fá sem gleggsta mynd af kostnaði við framkvæmdina því Hafnarfjarðarbær hefur verið í samningaviðræðum við félagið um kaup á knatthúsinu sem sannarlega er í eigu FH. Óháður endurskoðandi var fenginn í verkið og ýmsar athugasemdir og spurningar komu þar upp um hvernig bókhaldið hefur verið fært á framkvæmdatímanum sem á köflum virðist hafa verið ónákvæmt.“
Blöskrar orðræðan
Eftir að úttektin hafi orðið opinber hafi fjölmargir stokkið fram á ritvöllinn og dæmt harkalega þá sem hafi komið að stjórn og uppbyggingu innan FH á tímabilinu. Vísar hún þar til Viðars Halldórssonar, formanns FH, og Jóns Rúnar Halldórssonar bróður hans og fyrrverandi formanns knattspyrnudeildar félagsins.
„Virðist sem að algjört skotleyfi sé komið á hlutaðeigandi. Og það áður en þeir hafa lagt fram sínar skýringar, þá einkum gagnvart aðalstjórn félagsins. Aðalstjórn FH ber ábyrgð á framkvæmdinni og þarf að útkljá hvernig fjármunum félagsins var ráðstafað á framkvæmdatímanum. Niðurstaða þess er þó alveg óháð því hverjar lyktir málsins verða varðandi kaup bæjarins á húsinu.
Mér blöskrar þessi orðræða; hve mjög það hlakkar í fjölmörgum yfir þessari stöðu og hvernig dómstóll götunnar hefur tekið völdin. Menn eru saklausir uns sekt er sönnuð! Höfum það hugfast.“