Hin 27 ára gamla Gina Schumacher sagði frá því að hún maðurinn hennar Iain Bethke bíði nú eftir stúlkubarni í apríl.
au hafa verið lengi saman eftir að hafa hist fyrst í reiðskóla.
„Bíðum óþolinmóð eftir því að litla stúlkan okkar komi í heiminn,“ skrifaði Gina Schumacher á Instagram.
Þetta er þeirra fyrsta barn og jafnframt fyrsta afabarn Schumacher.
Gina er hestaíþróttakona og hefur náð mjög góðum árangri í sinni íþrótt. Hún hefur efnast mikið af eigin velgengni þar. Auðvitað kom hestur við sögu þegar heimurinn fékk að vita um barnalukku hennar.
„Nýi knapinn minn mun koma í heiminn i apríl,“ skrifaði Gina.
Bróðir hennar, Mick Schumacher, óskaði henni til hamingju á samfélagsmiðlinum. „Svo spenntur,“ skrifaði hann.
Michael Schumacher er 55 ára gamall. Hann hefur ekki sést opinberlega síðan hann slasaðist alvarlega á höfði þegar hann féll á stein í skíðabrekku fyrir ellefu árum.
Schumacher varð sjöfaldur heimsmeistari í formúlu 1 sem er enn met þó að Lewis Hamilton hafi jafnað það árið 2020.
Þegar Michael Schumacher hætti keppni þá átti hann metið yfir flesta titla (7), flesta sigra í keppnum (91), var sá sem hafði oftast verið á ráspól (68) og sá sem hafði oftast komist á verðlaunapall (155).
Hann var algjör yfirburðarmaður í formúl 1 þegar hann var upp á sitt besta.