Lífið

Króli trú­lofaður

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Króli og Birta trúlofuðu sig í gær.
Króli og Birta trúlofuðu sig í gær. Króli og Birta

Kristinn Óli Haraldsson, sem er betur þekktur sem tónlistarmaðurinn og leikarinn Króli, og Birta Ásmundsdóttir kærasta hans, nú unnusta, eru trúlofuð.

Frá þessu greina þau á Instagram.

„Hún sagði já. 24.12.24,“ en út frá þessu má leiða líkur að því að Króli hafi farið á skeljarnar í gær, aðfangadag. Króli og Birta fögnuðu fimm árum sem par í sumar.

Króli gerði garðinn frægan í rapptvíeyki með tónlistarmanninum Jóapé, og urðu þeir landsþekktir á einni nóttu þegar þeir gáfu út lagið B.O.B.A. árið 2017. Síðan þá hefur Króli fengist við tónlist og leiklist, en hann er í dag útskrifaður leikari. Birta Ásmundsdóttir er dansari og listakona.


Tengdar fréttir

Æðisleg tilfinning að þurfa ekki að geðjast fólki

Kristinn Óla Haraldsson þarf vart að kynna fyrir landsmönnum en hann er með þekktari tónlistarmönnum landsins og hvað þekktastur undir nafninu Króli í tvíeykinu JóiPé og Króli. Króli skaust upp á stjörnuhimininn árið 2017 en ákvað fyrir nokkrum árum að draga sig í hlé frá tónlistinni til þess að sinna bæði leiklistinni og andlegri heilsu. Í síðustu viku sendi hann svo frá sér plötuna SCANDIPAIN ásamt Jóa og danska rapparanum Ussel. Blaðamaður ræddi við hann um listina, ástina og lífið.

„Mér finnst dauðinn bara falleg pæling“

Tónlistarmaðurinn og leiklistarneminn Kristinn Óli Haraldsson, betur þekktur sem Króli, hefur glímt við ýmsar geðraskarnir frá unga aldri sem hafa hamlað honum í gegnum lífið en eru einnig aflgjafi í listsköpuninni. 

Jói Pé og Króli snúa aftur

Eitt þekktasta tvíeyki landsins í tónlistarmönnunum Jóa Pé og Króla snúa aftur saman. Þeir eru að gefa út plötu næstkomandi föstudag en um er að ræða fyrstu plötu strákanna saman í fjögur ár. Þá boða þeir tónleika í Gamla Bíó og á Sjallanum í næstu viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.