Innlent

Hvað þarf að ræða í Kryddsíldinni?

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bjarni Benediktsson og Kristrún Frostadóttir verða á sínum stað í Kryddsíldinni þó hlutverk þeirra á þinginu hafi breyst á árinu sem er að líða.
Bjarni Benediktsson og Kristrún Frostadóttir verða á sínum stað í Kryddsíldinni þó hlutverk þeirra á þinginu hafi breyst á árinu sem er að líða. Vísir/Hulda Margrét

Kryddsíld Stöðvar 2 verður á sínum stað á gamlársdag þar sem formenn stjórnmálaflokkanna sem sæti eiga á Alþingi mæta og gera upp árið sem senn er á enda.

Kryddsíld verður í opinni dagskrá og beinni útsendingu klukkan 14 þann 31. desember. Það hefur sýnt sig í gegnum árin að áhorfendur hafa sterkar skoðanir á því hvað er nauðsynlegt að ræða á þessum tímamótum. Í ár gefum við landsmönnum tækifæri til að koma þeirri skoðun sinni á framfæri í aðdraganda þáttarins.

Kryddsíldina frá því í fyrra má sjá hér að neðan.

Gestir þáttarins verða formenn þeirra sex stjórnmálaflokka sem nú sitja á Alþingi, þeirra þriggja sem mynda ríkisstjórn og svo þeirra þriggja sem sitja í stjórnarandstöðu, þau Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Inga Sæland, Bjarni Benediktsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Sigurður Ingi Jóhannsson.

Hvað þarf að ræða sem tengist árinu sem er að líða? Viðburðaríku ári þar sem nýr forseti Íslands var kjörinn, ríkisstjórnin sprakk, Trump sneri aftur og stríðsátök jukust víða um heim? Að hverju þarf að spyrja leiðtogana? Hverju má ekki gleyma? 

Sendu þínar hugleiðingar á netfangið ritstjorn(hja)visir.is og láttu okkur vita. Við viljum vita hvað þér finnst.

Kryddsíld verður í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 klukkan 14 á gamlársdag.


Tengdar fréttir

Segir álfa hjálpa í baráttunni við fátækt

Inga Sæland segir álfana hjálpa sér í baráttunni við fátækt en að álfamálin séu þó ekki á dagskrá Flokks fólksins. Þetta sagði hún í Kryddsíld Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×