Enski boltinn

Cristiano Ronaldo: Ef ég ætti Man. United þá myndi ég leysa vandann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo dreymir um að eignast fótboltafélag í framtíðinni og Portúgalinn er farinn að tala um hvað hann myndi gera sem eigandi Manchester United.
Cristiano Ronaldo dreymir um að eignast fótboltafélag í framtíðinni og Portúgalinn er farinn að tala um hvað hann myndi gera sem eigandi Manchester United. Getty/ Diogo Cardoso

Cristiano Ronaldo þekkir vel til hjá Manchester United en Portúgalinn fór frá félaginu í desember 2022 og hefur spilað síðan í Sádi-Arabíu. Ronaldo segist gera sér vel grein fyrir því hvað sé vandamálið innandyra hjá United en hann notaði fiskabúr sem dæmi í útskýringum sínum á vandræðunum á Old Trafford.

Portúgalanum Ruben Amorim hefur ekki tekist að snúa við gengi Manchester United síðan hann tók við af Erik ten Hag. Liðið er í fjórtánda sæti deildarinnar og hefur aðeins unnið fjóra af tíu leikjum undir hans stjórn.

Stóra vandamálið er þó það að liðið er á rangri leið, því það hefur tapað þremur leikjum í röð og alls fimm af síðustu sjö leikjum.

Knattspyrnustjórinn er þó ekki vandamálið á Old Trafford samkvæmt Ronaldo. Hann segir líka að hann gæti leyst vandamál félagsins ef hann væri eigandi Man. United. ESPN segir frá.

„Enska úrvalsdeildin er sú erfiðasta í heimi. Öll liðin eru góð, öll liðin berjast, öll liðin hlaupa og allir leikmenn eru líkamlega sterkir. Fótboltinn er allt öðruvísi núna. Það er enginn auðveldur leikur lengur,“ sagði Ronaldo á Globe Soccer verðlaunahátíðinni.

„Ég sagði þetta fyrir einu og hálfu ári síðan og held áfram að tala um þetta. Vandamálið er ekki þjálfararnir. Þetta er eins og með fiskabúr. Ef þú ert með veikan fisk í búrinu og tekur hann í burtu. Þá leysir þú vandann en svo setur hann aftur í fiskabúrið og allir veikjast aftur,“ sagði Ronaldo.

„Þetta er sama vandamálið og hefur verið hjá Manchester United. Vandamálið er ekki alltaf þjálfarinn. Það er meira en það,“ sagði Ronaldo.

„Ef ég ætti Man. United þá myndi ég leysa vandann. Ég myndi hafa þessa hluti á hreinu,“ sagði Ronaldo. Hann er ekki sjálfur þó þjálfaraefni því draumar hans liggja allt annars staðar.

„Ég er ekki þjálfari og ég verð aldrei þjálfari. Forseti félags? Nei. Kannski verð ég eigandi félags,“ sagði Ronaldo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×