Sport

Björg­vin Karl hluti af nýrri at­vinnu­manna­deild í Cross­Fit

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Björgvin Karl Guðmundsson hefur verið í fremstu í röð í meira en áratug og var með á síðustu heimsleikum.
Björgvin Karl Guðmundsson hefur verið í fremstu í röð í meira en áratug og var með á síðustu heimsleikum. @bk_gudmundsson

Björgvin Karl Guðmundsson var einn af þeim fyrstu sem voru kynntir til leiks sem þátttakendur í nýrri atvinnumannadeild í CrossFit heiminum.

Deildin kallast World Fitness Project og munu forráðamenn hennar bjóða mörgu af besta CrossFit fólki heims tækifæri á vera á samningi hjá þeim. Samningurinn gulltryggir íþróttafólkinu fastar tekjur í stað þess að treysta aðeins á verðlaunafé og auglýsingasamninga.

Þessa dagana er verið að kynna það fólk sem hefur skrifað undir samning við þessa nýju atvinnumannadeild. Björgvin Karl var einn af þeim fyrstu.

Lykilatriðið er að samningurinn við World Fitness Project útilokar það ekki að viðkomandi íþróttafólk taki þátt í heimsleikum CrossFit samtakanna. Þau sem eru á samning geta því tekið þátt í opna hlutanum og undankeppninni eins og áður.

Barbell Spin CrossFit vefurinn fjallar um þetta verkefni en það verða gerðir tuttugu samningar við karla og tuttugu samningar við konur. Íþróttafólkið, sem fékk boð um samningsgerð, hefur verið í hópi besta CrossFit fólks heims síðustu ár.

Björgvin Karl er svo sannarlega í þeim hópi enda fastagestur á heimsleikunum og lengstum í hóp þeirra tíu bestu þar.

Samkvæmt fréttinni á Barbell Spin gæti íþróttafólkið fengið allt að hundrað þúsund Bandaríkjadali fyrir samninginn eða um fjórtán milljónir króna.

Þau verða í staðinn að keppa í þremur WFP keppnum á árinu en í hverri keppni verður einnig tíu keppendum í viðbót boðið að taka þátt í hverju móti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×