Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að fjöldinn sé svipaður og árið áður, en frá 2018 hafi að meðaltali 373 viðvaranir verið gefnar út á ári. Árið 2024 var því heldur undir meðallagi síðustu ára.

„Viðvaranir dreifðust misjafnlega eftir spásvæðum, flestar viðvaranir voru gefnar út á Suðausturlandi, 41 talsins, og á Breiðafirði og Vestfjörðum voru gefnar út 40. Fæstar voru á höfuðborgarsvæðinu, 14 talsins. Í öðrum landshlutum var fjöldi viðvara á bilinu 20 til 35. Á Norðurlandi eystra voru flestar appelsínugular viðvaranir gefnar út, sjö talsins. Oftast var varað við vindi og hríð, samtals 279 viðvaranir, en 54 viðvaranir voru gefnar út vegna asahláku, rigningar og snjókomu,“ segir í tilkynningunni.
