Bjart, kalt og hægur vindur Atli Ísleifsson skrifar 9. janúar 2025 07:14 Með suðlægu áttunum hlýnar og eftir frosthörkur morgunsins verður hiti í kringum frostmark í kvöld. Vísir/Vilhelm Hæð er nú yfir landinu og verður yfirleitt bjart, kalt og hægur vindur. Sums staðar verður þó skýjað með köflum á Vestfjörðum og við norðurströndina.
Á vef Veðurstofunnar segir að þegar líður á daginn færist hæðin suðaustur af landinu á sama tíma og lægð nálgast úr suðvestri. Því mun bæta smám saman í vind á sunnan- og vestanverðu landinu, suðaustan stinningsgola eða kaldi og dálítil él í þeim landshlutum. „Með suðlægu áttunum hlýnar og eftir frosthörkur morgunsins verður hiti í kringum frostmark í kvöld. Áframhaldandi suðlægar áttir með úrkomu sunnan- og vestantil en að mestu þurrt á norðaustanverðu landinu. Hlýnar enn frekar og hiti 1 til 6 stig annað kvöld, en áfram í kringum frostmark á Austurlandi. Um helgina er útlit fyrir að haldi áfram að hlýna með rigningu í öllum landshlutum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Sunnan og suðaustan 5-13 m/s, hvassast við suðvesturströndina. Dálítil él eða skúrir, en þurrt á Austurlandi. Frost 1 til 10 stig, en hiti um og yfir frostmarki suðvestan- og vestanlands. Á laugardag: Sunnan 8-13 m/s, rigning eða slydda með köflum og hiti 0 til 6 stig, en úrkomulítið og hiti um frostmark austantil. Á sunnudag: Ákveðin suðlæg átt og rigning, einkum sunnan- og vestanlands. Hægari vindur og dregur úr vætu eftir hádegi. Hiti 2 til 9 stig, en kólnar um kvöldið. Á mánudag: Suðvestanátt og rigning eða skúrir, en styttir upp austanlands síðdegis. Milt í veðri. Á þriðjudag: Suðlæg átt og rigning, en sums staðar slydda fyrir norðan. Hiti 0 til 10 stig, mildast syðst. Á miðvikudag: Útlit fyrir ákveðna suðvestlæga átt, skúrir og milt veður, en frost og él norðantil.
Veður Mest lesið Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Innlent Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Innlent Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Erlent Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík Innlent RÚV leiðréttir umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Innlent „Það er skítkalt hérna“ Erlent Fullveldi Íslands háð því að alþjóðalög séu virt Innlent Borgarfulltrúi sagður hafa sýnt ógnandi hegðun á íbúafundi Innlent Jagúar, skrautleg ferð, Baltasar Kormákur og fullt af „ís“ Innlent Karlar eiga mjög erfitt með að viðurkenna risvandamál Innlent Fleiri fréttir Snjókoma sunnantil eftir hádegi Stöku skúrir eða slydduél sunnan heiða Vindasamt á meðan öflugt úrkomusvæði gengur yfir landið Suðvestanátt með skúrum víða um land Vindasamt og úrkomusvæði gengur yfir landið Slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum Með rólegasta móti Skúrir og slydduél sunnan- og vestantil Rigning sunnan- og vestantil og kólnar síðdegis Dálítil væta og bætir í vind Hæg suðlæg átt og hiti að tíu stigum Mild sunnanátt og dálítil væta Væta af og til Íbúar á austari hluta landsins gætu séð til tunglmyrkvans Norðlæg átt en bjart að mestu sunnanlands Hiti að tíu stigum en víða næturfrost Vestlæg átt leikur um landið Víða allhvass vindur norðantil síðdegis Yfirleitt hægur vindur en allvíða él Breytileg átt og einhver él á sveimi Rólegt veður næstu daga Vindasamt og rigning Gul viðvörun á Vestfjörðum í kvöld og nótt Slydda og snjókoma víða um land Appelsínugular viðvaranir í kortunum Öflug lægð nálgast landið Viðvaranir í gildi og vætusamt víða um land Lægðagangur og umhleypingar næstu daga Él sunnan- og vestanlands og hvessir í kvöld Von á stormi Sjá meira