Innlent

Taka við rekstri Sæ­borgar á Skaga­strönd

Atli Ísleifsson skrifar
Tímamótunum var fagnað á Skagaströnd í vikunni.
Tímamótunum var fagnað á Skagaströnd í vikunni.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands tekur við rekstri hjúkrunarheimilisins Sæborgar á Skagaströnd frá og með 1. maí 2025.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá NSN. Þar segir að þetta sé samkvæmt ákvörðun fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Willums Þórs Þórssonar, í kjölfarið á uppsögn Félags- og skólaþjónustu Austur-Húnavatnsssýslu bs. á samningum um rekstur heimilisins. 

„Rekstur heimilisins hefur þyngst á undanförnum árum og verið dragbítur á rekstri þeirra sveitarfélaga sem að rekstrinum hafa staðið.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands rekur um 200 hjúkrunar- og sjúkrarými á Norðurlandi þ.m.t. á Blönduósi og Sauðárkróki. Fellur starfsemi Sæborgar því vel að starfsemi stofnunarinnar. Búast má við faglegri samlegð með yfirfærslu hjúkrunarheimilisins yfir til HSN. Munu starfsmenn þar fá aðgang að öflugri fagmenntun og upplýsinga- og gæðakerfum HSN.

Öllum starfsmönnum verður boðin áframhaldandi vinna hjá HSN. Ekki er fyrirhuguð veruleg breyting á starfsemi heimilisins frá því sem nú er,“ segir í tilkynningunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×