Erlent

Fyrr­verandi barnastjarna og feðgar meðal látinna

Lovísa Arnardóttir skrifar
Eyðileggingin er gríðarleg í Palisades.
Eyðileggingin er gríðarleg í Palisades. Vísir/EPA

Gróðureldarnir í Los Angeles fara nú í nýja átt sem veldur nýjum hættum. Alls eru ellefu látin í eldunum en er búist við því að sú tala hækki þegar slökkviliðsmenn fá tækifæri til að skoða þau hús betur sem hafa brunnið.

Meðal látinna eru feðgar og blind fyrrum barnastjarna, Rory Callum Sykes. Haft er eftir móður hans að hann hafi dáið á heimili þeirra í Palisades. Hún hafi reynt að bjarga honum úr kofanum sem hann bjó í við húsið en ekkert vatn hafi verið til reiðu í vatnsslöngunni þegar hún reyndi að slökkva eldinn.

Í frétt bandaríska miðilsins Reuters um eldana segir að eldar geisi nú á sex mismunandi stöðum í Los Angeles og hafi gert það síðan á þriðjudag. Alls hafa um tíu þúsund byggingar, heimili og iðnaðarhúsnæði, brunnið til kaldra kola síðustu daga. Þúsundir eru heimilislausir vegna eldanna og er búið að lýsa yfir neyðarástandi vegna reyks frá eldunum.

Þúsundir eru heimilislausir. Í Altadena hefur fólk komið með ýmsar nauðsynjar sem standa fólki til boða.Vísir/EPA

Í frétt Reuters segir að Santa Ana-vindarnir, sem hafi magnað upp eldana, hafi róast á föstudag en eldurinn sem hafi verið í Palisades-hverfinu í vestari enda borgarinnar hafi þá verið á leið í nýja átt. Þá hafi þurft að gefa út nýjar leiðbeiningar um rýmingar í borginni þegar eldarnir hafi fært sig nær Brentwood-hverfinu og San Fernando-dalnum.

Gróðureldarnir eru þeir verstu sem hafa verið í Los Angeles. Heilu hverfin eru horfin. Samkvæmt frétt Reuters var í gær, föstudagskvöld, hafði slökkviliðið náð böndum á um ellefu prósent eldanna við Palisades, miðað við átta prósent í gær, og um fimmtán prósent eldanna við Eaton en þetta hlutfall var í kringum þrjú prósent í gær. Það hefur því náðst nokkur árangur. 

Slökkviliðsmenn slökkva í glæðum í Altadena í Kaliforníu í gær í Eaton-gróðureldinum. Vísir/EPA

Rýmingar eru í gildi fyrir um 153 þúsund manns og viðvaranir um rýmingu og útgöngubann í gildi fyrir aðra 166 þúsund. 

Fjöldi slökkviliðsmanna frá öðrum ríkjum og frá Kanada hefur komið til aðstoðar auk þess sem forseti Bandaríkjanna, Joe Biden, hefur lofað alríkisaðstoð. Veðurstofa Bandaríkjanna hefur gefið út að aðstæður ættu að batna í Los Angeles um helgina þegar vind ætti að lægja. Enn yrði þó þurrt á svæðinu og því töluverð hætta út alla næstu viku. Búið er að lýsa yfir neyðarástandi vegna þykks, eitraðs reyks sem liggur yfir svæðinu. Nánar á vef BBC. 

Slökkviliðsmenn kasta eldtefjandi efnum yfir skóga nærri Palisades til að reyna að temja eldana.Vísir/EPA

Gavin Newsom, ríkisstjóri Los Angeles hefur kallað eftir því að það verði rannsakað hvernig kom til þess að fjöldi brunahana voru tómir þegar slökkviliðsmenn leituðu í þá. Það hafi tafið slökkvistarf. 

Í færslu á samfélagsmiðlinum X deildi Newsom bréfi sem hann skrifaði til yfirmanns vatns- og orkustofnunar Los Angeles um málið. Hann kallar eftir óháðri rannsókn á málinu.


Tengdar fréttir

Harmleikur í Hollywood: Hús fræga fólksins fuðra upp

Mikill fjöldi Hollywood stjarna hefur neyðst til að flýja heimili sín vegna þeirra gríðarlegu skógarelda sem nú brenna í úthverfum Los Angeles borgar. Þá hefur töluverður fjöldi stjarna misst heimili sín í úthverfi borgarinnar, Pacific Palisades og í Malibu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×