Veður

Auknar líkur á skriðum á Vest­fjörðum, Vestur- og Suður­landi

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Aurskriða sem féll í Búðardal í febrúar 2023. Auknar líkur eru á grjótskriðum næstu daga þegar frost fer úr jörðu, snjóa leysir og það rignir mikið.
Aurskriða sem féll í Búðardal í febrúar 2023. Auknar líkur eru á grjótskriðum næstu daga þegar frost fer úr jörðu, snjóa leysir og það rignir mikið.

Auknar líkur eru á grjóthruni og skriðum á Suður- og Vesturlandi og sunnanverðum Vestfjörðum þegar frost fer úr jörðu og úrkoma safnast upp á næstu dögum. Ekki er hægt að útiloka krapaflóðahættu á svæðum þar sem snjór er í giljum og farvegum.

Þetta kemur fram á bloggsíðu Veðurstofunnar um ofanflóð. Þar segir að fram á fimmtudag sé spáð suðlægum áttum með hlýindum og rigningu í flestum landshlutum, en mögulega snjókomu í allra hæstu fjöllum og á jöklum landsins. 

„Búast má við að úrkoman verði hvað mest á sunnan- og vestanverðu landinu. Þá fylgir úrkomunni hlýtt loft og er hiti yfir frostmarki í nær öllum landshlutum. Því má gera ráð fyrir að frost fari úr jörðu. Snjó hefur tekið upp víðast hvar á landinu en enn er snjór til fjalla og í giljum,“ segir í færslunni.

Þótt ekki sé búist við óvenju ákafri rigningu eða miklum hlýindum geti langvarandi væg hláka aukið líkur á skriðuföllum.

„Jarðvegurinn getur þolað mikið vatnsmagn, en þegar rignir, frost fer úr jörðu og snjóa leysir safnast sífellt meira vatn fyrir og jarðvegurinn getur orðið óstöðugur. Þá þarf úrkomumagn ekki að vera umtalsvert til að skriður geti fallið, segir einnig.

Uppsöfnuð úrkoma og afrennsli

Uppsöfnuð úrkoma eigi að ná háum gildum á næstu þremur dögum og því varar Veðurstofan við auknum líkum á grjóthruni og skriðum á þeim svæðum þar sem úrkoman er mest. Slíkar veðuraðstæður geti valdið krapaflóðum þar sem snjór er enn í giljum og farvegum.

Búist er við töluverðri uppsafnaðri úrkomu næstu daga.Veðurstofan

Úrkoman og hlýindin valdi auknu afrennsli, sér í lagi á Suður- og Vesturlandi og sunnanverðum Vestfjörðum, eins og sjá má á myndinni að neðan. 

„Margar ár eru háar eftir vatnavexti helgarinnar og búast má við enn frekari vatnavöxtum í ám og lækjum næstu daga,“ segir í tilkynningunni.

Hér má sjá uppsafnað afrennsli sem verður mest á suðurlandi, vesturlandi og á sunnanverðum Vestfjörðum.Veðurstofan



Fleiri fréttir

Sjá meira


×