Á vef Veðurstofunnar segir að á norðaustanverðu landinu sé þó yfirleitt þurrt. Kólnar smám saman.
„Í dag fjarlægist lægðin og það dregur úr vindi og ofankomu, stöku él seinnipartinn, en seint í kvöld nálgast næsta lægð og það fer að snjóa á Suðaustur- og Austurlandi.
Það lægir og styttir upp fyrir austan í fyrramálið. Annars verður fremur hæg breytileg átt á morgun og stöku él, frost 0 til 8 stig.
Síðdegis nálgast skil úr suðri, það snýst í vaxandi austanátt og seint annað kvöld og aðra nótt fer að snjóa í flestum landshlutum.
Um helgina er svo útlit fyrir ákveðna norðaustan- og austanátt með snjókomu eða éljum um mest allt land og færð gæti því spillst allvíða,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag: Breytileg átt 3-10 og stöku él, en snjókoma austast í fyrstu. Yfirleitt þurrt sunnan- og vestanlands. Frost 0 til 8 stig. Vaxandi austanátt síðdegis og fer að snjóa sunnan- og austantil seint um kvöldið.
Á laugardag: Norðaustan og austan 10-18, en hvassara allra syðst. Snjókoma með köflum og vægt frost, en heldur hlýrra og sums staðar slydda við suðurströndina.
Á sunnudag: Norðaustan 13-23, hvassast suðaustantil. Snjókoma eða slydda með köflum, en samfelld snjókoma um landið austanvert. Hiti breytist lítið.
Á mánudag: Minnkandi norðaustanátt. Snjókoma eða slydda austantil, og él á Norðurlandi, en þurrt um landið suðvestanvert. Hiti nálægt frostmarki.
Á þriðjudag: Norðaustlæg eða breytileg átt og dálítil él, en yfirleitt þurrt sunnan- og vestanlands. Frost 0 til 9 stig.
Á miðvikudag: Austan- og suðaustanátt og dálítil él við suðurströndina, annars þurrt að kalla.