Stórsigur hjá Slóvenum í fyrsta leik okkar riðils Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2025 18:25 Tilen Kodrin fagnar einu marka Slóvena í stórsigrinum á Kúbu í kvöld. Getty/Luka Stanz Slóvenar byrjuðu heimsmeistaramótið í handbolta á stórsigri á Kúbverjum en þessar þjóðir eru með Íslendingum í riðli á mótinu.
Það var búist við því að Ísland og Slóvenía berjist um efsta sæti riðilsins og þessi úrslit gera ekkert annað en að ýta undir þá spá. Slóvenar unnu leikinn á endanum með 22 marka mun, 41-19. Slóvenar breyttu stöðunni úr 3-3 í 16-4 með 13-1 spretti í upphafi leiks og voru síðan níu mörkum yfir í hálfleik, 18-9. Seinni hálfleikurinn var síðan algjör formsatriði þar sem allir leikmenn slóvenska liðsins fengu að spreyta sig. Aleks Vlah átti góðan leik með Slóvenum og skoraði átta mörk úr níu skotum, flest þeirra með óverjandi þrumuskotum. Frakkarnir léku sér á sama tíma að Kúvætum með 24 marka sigri, 43-19, í fyrsta leik þeirra þjóða á HM. Frakkarnir voru þrettán mörkum yfir í hálfleik, 21-8, eftir að hafa endað hálfleikinn á 17-3 spretti Spánverjar unnu níu marka sigur á Síle, 31-22. Sílemenn voru yfir framan af leik en Spánverjar voru komnir fjórum mörkum yfir í hálfleik, 17-13. Ítalir voru ekki í miklum vandræðum með Alsíringa. Þeir voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 16-11, og unnu með níu marka mun, 32-23.
HM karla í handbolta 2025 Mest lesið Lýsti ofbeldinu sem faðir hans beitti hann Sport Paul vill nú berjast við fyrrum heimsmeistara í pílu Sport Rekinn fyrir að vera í sambandi með leikmanni en vill annað tækifæri Enski boltinn „Bestu liðin hafa ekkert að fela og deila upplýsingum“ Handbolti Eygló tilnefnd sem lyftingakona ársins í Evrópu Sport Lífsferill íþróttamannsins: Við verðum að tala meira um sálina í íþróttunum Sport Argentína rústaði Brasilíu og er komin á HM Fótbolti Ætla að láta frjálsíþróttakonur gangast undir kynjapróf Sport Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Íslenski boltinn Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Bestu liðin hafa ekkert að fela og deila upplýsingum“ Portúgölsku Íslendingaliðin með mikilvæga sigra Bjarki Már öflugur Elliði Snær átti sinn þátt í óvæntum sigri Alfreð Gísla: „Skemmdarverk á handboltanum“ Aldís með níu mörk í naumum sigri Andrea og stöllur í góðri stöðu eftir fyrri leikinn Valskonur taka tveggja marka tap með sér heim á Hlíðarenda Uppgjör og viðtal: Haukar - Izvidac 30-27 | Haukar fara með naumt forskot til Bosníu Marta hetja Eyjakvenna Grótta vann gríðarmikilvægan sigur gegn Stjörnunni Gísli fór mikinn í fyrsta leiknum eftir meiðsli Fram tryggði annað sætið með sigri gegn ÍR Íslendingalið mætast í úrslitakeppninni Donni markahæstur meðan Guðmundur skoraði eitt gegn Ágústi Íslendingar í riðli með Færeyingum „Verður hörkueinvígi, þeir eru drullugóðir“ Spennan gríðarleg þegar ein umferð er eftir Andrea allt í öllu og Aldís Ásta deildarmeistari Uppgjörið: Fram - ÍBV 43-36 | Fín fyrirheit fyrir Fram „Það er bara einn titill eftir“ Komnar með ógeð af því að tapa: „Ógeðsleg tilfinning“ Uppgjörið: Valur - Haukar 29-23 | Deildarmeistaratitillinn í augsýn „Ég er ofurmenni, það á ekkert að geta komið fyrir mig“ Einar kveður Guðmund og fer í „stærstu og bestu deild heims“ Danir furða sig á að Nielsen sé sniðgenginn Aron tekur við landsliði Kúveits Neyddir til að spila í miðri þjóðarsorg Georgíumenn í góðum málum í íslenska riðlinum Strákarnir hans Dags völtuðu yfir Tékka Sjá meira