Handbolti

Töl­fræðin á móti Kúbu: Aron kveikti á seinni bylgjunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Pálmarsson spilaði nánast óaðfinnanlega þær fimmtán mínútur sem hann spilaði í leiknum.
Aron Pálmarsson spilaði nánast óaðfinnanlega þær fimmtán mínútur sem hann spilaði í leiknum. Vísir/Vilhelm

Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann 21 marks sigur á Kúbu, 41-19, í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta. Þetta var fagmannleg afgreiðsla hjá strákunum okkar og eftir tvo fyrstu leikina er íslenska liðið búið að stimpla marga menn inn í mótið.

Líkt og í fyrsta leik var mótstaðan ekki mikil en það jákvæðasta í þessum leik var hversu betur gekk að keyra seinni bylgjuna heldur en í síðasta leik. Þar á einn maður skilið mikið hrós.

Aron Pálmarsson var mættur á ný í íslenska landsliðsbúninginn og byrjaði leikinn. Fyrirliðinn gaf líka tóninn á upphafsmínútunum í leiknum. Hann fór á kostum í seinni bylgjunni og bjó til tíu mörk á fyrstu fimmtán mínútunum og öll nema tvö eftir hraða miðju eða í hraðaupphlaupi. Aron skoraði þrjú mörk sjálfur, gaf fjórar stoðsendingar og þrjár sendingar í viðbót sem gáfu víti og mörk.

Það var líka allt annað að sjá Elliða Snæ Viðarsson sem skoraði fimm mörk á fyrstu átján mínútum leiksins. Elliði gerði mjög vel að koma sér í stöðu á línunni í hröðu sóknunum.

Íslenska liðið náði að skora ellefu mörk í röð í fyrri hálfleiknum en Kúbverjarnir skoruðu þá ekki í meira en tíu mínútur.

Þorsteinn Leó Gunnarsson stimplaði sig inn með fimm flottum mörkum í seinni hálfleik og Orri Freyr Þorkelsson byggði ofan á góða frammistöðu í fyrsta leik. Orri klikkaði reyndar á fyrsta skoti en svaraði því með fimm góðum mörkum.

Allir fengu að spila og margir voru að skora. Markverðirnir skiptu leiknum á milli sín og áttu líka góða spretti.

Vísir fylgist vel með tölfræði íslenska liðsins á mótinu og hefur nú tekið saman þá leikmenn sem sköruðu fram úr í tölunum í þessum öðrum leik Íslands á mótinu.

Hér fyrir neðan má sjá toppa íslenska liðsins í tölfræðinni.

  • - Íslensku landsliðsmennirnir á móti Kúbu á HM 2025-
  • Hver skoraði mest:
  • 1. Þorsteinn Leó Gunnarsson 5
  • 1. Elliði Snær Viðarsson 5
  • 1. Orri Freyr Þorkelsson 5/1
  • 4. Viggó Kristjánsson 4/4
  • 5. Óðinn Þór Ríkharðsson 3
  • 5. Aron Pálmarsson 3
  • 5. Bjarki Már Elísson 3
  • 5. Sigvaldi Guðjónsson 3
  • -
  • Markahæstir í fyrri hálfleik:
  • 1. Elliði Snær Viðarsson 5
  • 2. Viggó Kristjánsson 4/4
  • 3. Aron Pálmarsson 3
  • 3. Bjarki Már Elísson 3
  • 3. Sigvaldi Guðjónsson 3
  • 6. Elvar Örn Jónsson 2
  • -
  • Markahæstir í seinni hálfeik:
  • 1. Þorsteinn Leó Gunnarsson 5
  • 1. Orri Freyr Þorkelsson 5/1
  • 3. Óðinn Þór Ríkharðsson 3
  • 4. Sveinn Jóhannsson 2
  • 4. Gísli Þorgeir Kristjánsson 2
  • -
  • Hver varði flest skot:
  • 1. Viktor Gísli Hallgrímsson 8 (47%)
  • 2. Björgvin Páll Gústavsson 7/1 (41%)
  • -
  • Hver spilaði mest í leiknum:
  • 1. Elliði Snær Viðarsson 37:41
  • 2. Viggó Kristjánsson 30:00
  • 2. Óðinn Þór Ríkharðsson 30:00
  • 2. Bjarki Már Elísson 30:00
  • 2. Teitur Örn Einarsson 30:00
  • 2. Orri Freyr Þorkelsson 30:00
  • -
  • Hver skaut oftast á markið:
  • 1. Orri Freyr Þorkelsson 6
  • 2. Bjarki Már Elísson 5
  • 2. Þorsteinn Leó Gunnarsson 5
  • 2. Elliði Snær Viðarsson 5
  • 5. Viggó Kristjánsson 4
  • 5. Sigvaldi Guðjónsson 4
  • 5. Teitur Örn Einarsson 4
  • -
  • Hver gaf flestar stoðsendingar:
  • 1. Janus Daði Smárason 5
  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 5
  • 3. Aron Pálmarsson 4
  • 4. Viggó Kristjánsson 3
  • 5. Björgvin Páll Gústavsson 2
  • 5. Óðinn Þór Ríkharðsson 2
  • 5. Teitur Örn Einarsson 2
  • -
  • Hver átti þátt í flestum mörkum:
  • (Mörk + Stoðsendingar)
  • 1. Aron Pálmarsson 7
  • 1. Viggó Kristjánsson 7
  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 7
  • 4. Janus Daði Smárason 6
  • 4. Þorsteinn Leó Gunnarsson 6
  • 6. Óðinn Þór Ríkharðsson 5
  • 6. Elliði Snær Viðarsson 5
  • 6. Orri Freyr Þorkelsson 5
  • -
  • Hver stoppaði oftast í vörninni (HB Statz):
  • 1. Þorsteinn Leó Gunnarsson 7
  • 2. Elliði Snær Viðarsson 6
  • 3. Sveinn Jóhannsson 3
  • 4. Teitur Örn Einarsson 3
  • 5. Ýmir Örn Gíslason 2
  • -
  • Mörk skoruð í tómt mark
  • 1. Björgvin Páll Gústavsson 1
  • 1. Þorsteinn Leó Gunnarsson 1
  • 1. Sveinn Jóhannsson 1
  • -
  • Hver tapaði boltanum oftast:
  • 1. Janus Daði Smárason 3
  • 2. Þorsteinn Leó Gunnarsson 2
  • -
  • Flest varin skot í vörn:
  • 1. Elvar Örn Jónsson 2
  • 1. Ýmir Örn Gíslason 2
  • -
  • Hver fiskaði flest víti:
  • 1. Elvar Örn Jónsson 2
  • 2. Viggó Kristjánsson 1
  • 2. Gísli Þorgeir Kristjánsson 1
  • 2. Elliði Snær Viðarsson 1
  • 2. Teitur Örn Einarsson 1
  • -
  • Hver fiskaði flesta brottrekstra:
  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 3
  • 2. Elliði Snær Viðarsson 1
  • 2. Orri Freyr Þorkelsson 1
  • -
  • Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í sókn (HB Statz):
  • 1. Aron Pálmarsson 8,50
  • 2. Elliði Snær Viðarsson 8,47
  • 3. Viggó Kristjánsson 8,39
  • 4. Gísli Þorgeir Kristjánsson 7,71
  • 5. Þorsteinn Leó Gunnarsson 7,69
  • -
  • Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í vörn (HB Statz):
  • 1. Elliði Snær Viðarsson 10,00
  • 2. Þorsteinn Leó Gunnarsson 8,46
  • 3. Elvar Örn Jónsson 7,10
  • 4. Sveinn Jóhannsson 6,84
  • 5. Janus Daði Smárason 6,66
  • -
  • - Hvaðan komu flest mörk íslenska liðsins í leiknum -
  • 9 með langskotum
  • 6 af línu
  • 5 úr vítum
  • 3 með gegnumbrotum
  • 3 úr hægra horni
  • 2 úr vinstra horni
  • 19 úr hraðaupphlaupum (7 með seinni bylgju)
  • -
  • Skotnýting íslenska liðsins í leiknum
  • 82% úr langskotum
  • 50% úr gegnumbrotum
  • 86% af línu
  • 71% úr hornum
  • 83% úr vítum
  • -
  • - Plús & mínus kladdinn í leiknum -
  • Mörk með langskotum: Ísland +1
  • Mörk af línu: Ísland +5
  • Mörk úr hraðaupphlaupum: Ísland +18
  • Tapaðir boltar: Ísland -8
  • Fiskuð víti: Ísland +3
  • -
  • Varin skot markvarða: Ísland +4
  • Varin víti markvarða: Ísland +1
  • Misheppnuð skot: Kúba +23
  • Löglegar stöðvanir: Ísland +7
  • Refsimínútur: Kúba +8 mín.


  • - Góðu og slæmu kaflarnir í leiknum -
  • Fyrri hálfleikurinn:
  • 1. til 10. mínúta: Ísland +3 (8-5)
  • 11. til 20. mínúta: Ísland +9 (9-0)
  • 21. til 30. mínúta: Jafnt (4-4)
  • Seinni hálfleikurinn:
  • 31. til 40. mínúta: Ísland +4 (5-1)
  • 41. til 50. mínúta: Ísland +3 (8-5)
  • 51. til 60. mínúta: Ísland +2 (6-4)
  • Byrjun hálfleikja: Ísland +7 (13-6)
  • Lok hálfleikja: Ísland +2 (10-8)
  • Fyrri hálfleikur: Ísland +12 (21-9)
  • Seinni hálfleikur: Ísland +9 (19-10)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×