Bjarki Steinn í fyrsta sinn í byrjunar­liði Venezia

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarki Steinn Bjarkason verst Matteo Cancellieri.
Bjarki Steinn Bjarkason verst Matteo Cancellieri. getty/Emmanuele Ciancaglini

Tveir Íslendingar voru í byrjunarliði Venezia sem gerði 1-1 jafntefli við Parma á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.

Bjarki Steinn Bjarkason fékk sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliði Venezia í deildarleik í dag. Mikael Egill Ellertsson var sömuleiðis í byrjunarliðinu hjá Feneyingum.

Joel Pohjanpalo kom Venezia yfir með marki úr vítaspyrnu á 20. mínútu en Hernani jafnaði fyrir Parma úr öðru víti á 56. mínútu.

Bjarki var tekinn af velli á 76. mínútu en Mikael lék allan leikinn fyrir Venezia sem hefur ekki enn unnið útisigur á tímabilinu.

Venezia er í nítjánda og næstneðsta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með fimmtán stig, fjórum stigum frá öruggu sæti. Parma er í 15. sætinu með tuttugu stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira