Á aðfangadag var greint frá því að Viggó hefði samið við Erlangen og myndi byrja að spila með liðinu þegar keppni í þýsku úrvalsdeildinni hefst aftur eftir HM. Hann kemur til liðsins frá Leipzig, sem er á töluvert betri stað í þýsku deildinni en botnbaráttulið Erlangen.
Ólafur var aðstoðarþjálfari hjá Erlangen um tíma. Vistaskipti Viggós komu honum verulega á óvart eins og hann lýsti í viðtali í Handkastinu.
„Já, mörg. Sérstaklega að hann skyldi ekki hafa samband við mig að fyrra bragði. En auðvitað er eitt að vera þjálfari þarna en annað að vera leikmaður. Það er alveg hægt að lifa þarna af sem leikmaður,“ sagði Ólafur.
„En ef þú ert með metnað, bara galin skipti, en vonandi hefur hann fengið eitthvað borgað fyrir það. Staðurinn er fallegur og allt það en stóri hnífurinn í kúnni þarna er framkvæmdastjórinn,“ sagði Ólafur enn fremur.
Tekur þessu sem hrósi
Viggó segist að einhverju leyti sammála Ólafi, og hefur trú á því að hann geti spilað á hærra stigi. Hugsunin sé að skiptin til Erlangen opni aðrar dyr hjá stærra liði.
„Ég las þetta. Ég tek þessu bara sem hrósi. Ég er alveg sammála honum. Auðvitað er mitt markmið að spila á sem hæstu stigi, mér fannst hann vísa í það. Ég er sammála honum að því leytinu til. En oft þarf maður að taka eitt skref aftur á bak til að taka tvö áfram og það er mín hugsun á bakvið þetta,“ segir Viggó í samtali við Vísi.
Töluvert fleira kemur fram í viðtalinu við Viggó sem má sjá í heild í spilaranum.
Ísland og Egyptaland mætast klukkan 19:30 annað kvöld í Zagreb. Um er að ræða fyrsta leik strákanna okkar í milliriðli og toppsæti hans undir. Liðinu verður fylgt vel eftir á Vísi fram að leik.