Þetta kemur fram í umfjöllun Daily Mail þar sem segir að málið sé hið dularfyllsta. Justin sé enda staddur í skíðafríi með eiginkonunni í Aspen í Colorado ríki í Bandaríkjunum. Eftir að fregnir bárust af því að hann væri hættur að fylgja henni spruttu upp getugátur um það hvort Adam væri ekki lengur í paradís enda hjónin verið gift í sex ár.
Segir í umfjöllun miðilsins að söngvarinn hafi raunar nýlega farið í miklar hreinsanir á samfélagsmiðlinum. Þannig sé hann hættur að fylgja nokkrum einstaklingum líkt og tengdaföður sínum, eiginkonu sinni, vini sínum Usher, fyrrum umboðsmanni sínum Scooter Braun og einum af sínum bestu vinum Ryan Good.
„Einhver fór inn á aðganginn minn og hætti að fylgja eiginkonunni. Þetta er farið að verða grunsamlegt,“ skrifar söngvarinn nú á Instagram. Hjónin höfðu áður birt myndir af hvort öðru á samfélagsmiðlinum úr fríinu sem varð til þess að slá á áhyggjur aðdáenda.
Þau eignuðust sitt fyrsta barn saman í ágúst í fyrra, drenginn Jack Blues Bieber. Þó birti Bieber að sögn miðilsins einnig mynd af sér þar sem hann var einsamall í sófa í fríinu með svokallað bong á milli lappanna sem vakti ugg meðal nokkurra aðdáenda. Maríjúanareykingar eru löglegar í ríkinu.