Innlent

Prammi á ferðinni á Ölfus­á vegna nýrrar brúar

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Pramminn, sem flytur tæki og tól út í Efri Laugardælaeyju þar sem ýmsar rannsóknir munu fara fram á næstu vikum vegna smíði nýju brúarinnar.
Pramminn, sem flytur tæki og tól út í Efri Laugardælaeyju þar sem ýmsar rannsóknir munu fara fram á næstu vikum vegna smíði nýju brúarinnar. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Það er ekki á hverjum degi, sem það sést prammi sigla á Ölfusá við Selfoss en það gerðist þó í dag þegar byrjað var að flytja vélar og tæki í Efri Laugardælaeyju til að hefja jarðvegsrannsóknir á eyjunni en nýja Ölfusárbrúin mun meðal annars fara þar yfir.

Sigurður Ingi Jóhannsson þáverandi innviðaráðherra tók fyrstu skóflustunguna af nýju brúnni 20. nóvember síðastliðinn en brúin mun kosta um 18 milljarða króna í byggingu. Byggð verður 330 metra löng brú.

En hvað eruð þið að fara með út í eyjuna?

„Gröfu, bor og búnað. Þetta er spennandi verkefni en smá krefjandi”, segir Árni Kópsson, eigandi fyrirtækisins Vatnsborun og prammans.

Brúin fer yfir Efri Laugardælaeyju í Ölfusá og í dag var byrjað að ferja ýmsa hluti yfir í eyjuna til að hefja þar rannsóknar áður en að smíði brúarinnar kemur.

„Þar á að fara í jarðvegsrannsóknir fyrir stöpul brúarinnar, sem á að rísa hér. Þetta er náttúrulega svo sem ekki nema lítill hluti verksins, það eru þessar rannsóknir en þetta er þó undirbúningur fyrir það sem koma skal á næstu árum,” segir Höskuldur Tryggvason, verkefnisstjóri á framkvæmdadeild Vegagerðarinnar.

Höskuldur Tryggvason, verkefnisstjóri á framkvæmdadeild Vegagerðarinnar, sem var að fylgjast með prammanum við störf á Ölfusá í dag.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Er þetta ekki bara spennandi og skemmtilegt ?

„Jú, það verður mjög spennandi og skemmtilegt að fylgjast með þessu rísa hérna. Við áætlun að fyrstu bílarnir fara yfir nýju brúna í október 2028”, bætir Höskuldur við.

Svona mun nýja Ölfusárbrúin líta út en umferð verður hleypt á hana í október 2028.Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×