Bæjarráð Ölfuss tók jákvætt í erindi um uppbyggingu kolefnisförgunarstöðvar Carbfix í sveitarfélaginu á fundi í síðustu viku. Taka á viljayfirlýsingu um verkefnið fyrir í bæjarstjórn 30. janúar. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, og Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, eru á meðal þeirra sem halda erindi á fundinum sem Carbfix hefur boðað til í Versölum í Þorlákshöfn á mánudag, 27. janúar.
Fara á yfir hvers vegna kolefnisförgunarstöðvar eru byggðar, hvernig þær geta litið út og hvaða samfélagslegu og efnahagslegu áhrif þær hafa, að því er kemur fram í fundarboðinu. Boðið verður upp á spurningar úr sal og af netinu.
Förgun kolefnisins á að fara fram með aðferð sem Carbfix hefur þróað sem felst í því að koltvísýringi er dælt djúpt ofan í jörðina þar sem hann binst varanlega í steindir.
Niðurdæling af þessu tagi hefur farið fram við Hellisheiðarvirkjun í Ölfusi frá 2012. Carbfix er langt komið með að binda bæði koltvísýrings- og brennisteinsvetnislosun frá jarðvarmavirkjuninni með aðferðinni. Frá 2014 hefur fyrirtækið dælt 75.000 tonnum af koltvísýringi niður í borholur við virkjunina.
Nánast allt utan vatnsverndarsvæða komi til greina
Ólafur Elínarson, samskiptastjóri Carbfix, segir stöðina sem fyrirtækið vill reisa í Ölfusi svipaða þeirri sem stefnt er á að reisa við Straumsvík í Hafnarfirði. Hún sé í samræmi við vilja og stefnu Carbfix um að nýta tækni sína á fleiri stöðum. Fundurinn á mánudaginn sé upphafið að samtali um staðsetningu, áhrif og ávinning af verkefninu.
Líkt og í Straumvík væri ætlunin að flytja koltvísýring á fljótandi formi með flutningaskipum til Ölfuss. Hafnarstjórn Þorlákshafnar er á meðal aðila viljayfirlýsingarinnar sem bæjarstjórnin hefur til umfjöllunar. Til þess þyrfti að reisa móttökustöð með tönkum en þaðan yrði vökvinn fluttur í gegnum leiðslur til niðurdælingarborholna.
Fyrirhuguð staðsetning borholnanna nálægt íbúabyggð hefur verið umdeild í Hafnarfirði þar sem hópur íbúar hefur krafist íbúakosningar um kolefnisförgunarmiðstöðina Coda Terminal.
Í Ölfusi koma nánast allar staðsetningar utan vatnsverndarsvæða til greina fyrir borholurnar, að sögn Ólafs. Móttökustöð fyrir gasið þyrfti að vera annað hvort við höfnina í Þorlákshöfn eða lengra frá bænum.
Carbfix vilji þróa verkefnið með íbúum frá byrjun, þar á meðal staðsetningu stöðvarinnar.
„Við ætlum að láta íbúana hafa meira um það segja og þess vegna er allt opið eins og staðan er núna,“ segir Ólafur um áformin.