Sport

Ní­tján ára hjólakona lést: „Við verðum að stöðva þetta blóð­bað“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Piffer þótti efnileg hjólreiðakona og var þegar farinn að safna sigrum á sínum ferli.
Sara Piffer þótti efnileg hjólreiðakona og var þegar farinn að safna sigrum á sínum ferli. @SaraPiffer

Mikil reiði er á Ítalíu eftir að efnileg hjólakona varð fyrir bíl á æfingu og lést af sárum sínum.

Í dag fer fram jarðarför hjólreiðakonunnar Söru Piffer sem varð aðeins nítján ára. Hún var við æfingar þegar hún varð fyrir bíl í framúrakstri.

Piffer þótti mjög efnileg hjólreiðakona, hafði unnið 23 ára mót og náð góðum árangri með liði sínu.

Mikil sorg er á Ítalíu en það er líka mikil reiði. Opinberar tölur á Ítalíu sýna að 204 hjólreiðamenn eða konur létust á síðasta ári eftir að hafa orðið fyrir bíl.

„Við verðum að stöðva þetta blóðbað,“ sagði ítalska hjólreiðagoðsögnin Francesco Moser. Hann vann meðal annars Giro d'Italia, Ítalíuhjólreiðarnar, á sínum tíma og býr í sama þorpi og Piffer fjölskyldan. Hann þekkti því til Söru og hennar fjölskyldu. Cycling News segir frá.

„Þetta er óásættanlegt. Það eru allt of margir harmleikir á götunum og allt of margir hafa látið lífið. Við verðum að gera eitthvað,“ sagði Moser.

Samkvæmt fréttum frá Ítalíu þá var Piffer á æfingu og að hjóla með bróður sínum á beinum vegi nálægt Trento.

Þá kom bíll á móti og tók fram úr öðrum bíl. Hann sá ekki hjólreiðafólkið vegna þess að sólin var mjög lágt á lofti.

Piffer var flutt í burtu í þyrlu en lést á sjúkrahúsi af sárum sínum.

„Þau báðu mig um að velja föt á hana fyrir jarðarförina. Ég valdi hjólreiðatreyjuna sem hún vann í á síðasta ári,“ sagði móðir hennar Marianna í viðtali við La Repubblica.

„Það stendur sigurvegari framan á treyjunni og hún tileinkaði þá Matteo Lorenz árangur sinn en hann lést á síðasta ári. Sara var alltaf sigurvegari í mínum augum og hún dó í örmum bróður síns,“ sagði Marianna.

„Áður en hún fór út á æfinguna þá bað ég hana um að fara varlega. Hún svaraði: Aðrir þurfa að passa sig í kringum okkur hjólreiðafólkið því þeir átta sig ekki á hvaða áhættu þau eru að taka,“ sagði móðir hennar.

Christan, bróðir Piffer, slasaðist lítið í árekstrinum. „Ég heyrði hávaða og horfði til baka. Þá hljóp ég til systur minnar en það var ekkert sem ég gat gert. Ég var fyrst mjög reiður út í bílstjórann en svo sá ég hvað þau voru hrædd og skömmustuleg,“ sagði Christan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×