Enski boltinn

Villa berst við ná­grannana um Disasi

Smári Jökull Jónsson skrifar
Axel Disasi í leik gegn Wolves á dögunum en hann gæti mögulega klæðst gulu treyjunni á næstunni.
Axel Disasi í leik gegn Wolves á dögunum en hann gæti mögulega klæðst gulu treyjunni á næstunni. Vísir/Getty

Varnarmaðurinn Axel Disasi er sagður hafa náð munnlegu samkomulagi við Aston Villa í tengslum við fyrirhuguð félagaskipti frá Chelsea. Fleiri félög í úrvalsdeildinni eru áhugasöm um Frakkann öfluga. 

Unai Emery knattspyrnustjóri Aston Villa er áhugasamur um að bæta miðverði í leikmannahóp sinn. Diego Carlos yfirgaf Villa fyrr í mánuðinum og um helgina meiddist Tyrone Mings og miðvarðastaðan því orðin ansi þunnskipuð.

Fabrizio Romano greinir frá því á samfélagsmiðlinum X að munnlegt samkomulag á milli Disasi og Villa sé nú þegar í höfn. 

Disasi virðist enga framtíð eiga fyrir sér á Stamford Bridge en Chelsea er með miðverðina Tosin Abarabioyo og Levi Colwill innan sinna raða auk þeirra Wesley Fofana og Benoit Badiashile sem báðir eru meiddir. Þá kallaði liðið Trevor Chalobah til baka úr láni hjá Crystal Palace en hann var í byrjunarliði Chelsea gegn Manchester City um helgina.

Chelsea og Astona Villa hafa þó enn ekki náð samkomulagi um kaupverð fyrir Disasi en Frakkinn er með samning við Lundúnaliðið til ársins 2029 og mun það örugglega kosta Villa skildinginn að losa þann samning.

Það gæti opnað glufu fyrir nágrannalið Aston Villa í Wolves sem sagðir eru afar áhugasamir um að lokka Disasi til sín. Wolves veitir ekki af því að styrkja varnarleik sinn en aðeins botnlið Southampton hefur fengið á sig fleiri mörk í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×