Körfubolti

„Þetta eru allt Kefl­víkingar“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Anna Ingunn með boltann.
Anna Ingunn með boltann. Vísir/Diego

Lið Keflavíkur í Bónus-deild kvenna var rætt í þættinum Bónus Körfuboltakvöld eftir sigur liðsins á Hamar/Þór. Systrabönd innan liðsins voru sérstaklega tekin fyrir.

Systurnar Agnes María og Anna Ingunn Svansdóttir áttu góðan leik þegar Keflavík lagði Hamar/Þór í síðustu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta. 

Hörður Unnsteinsson, Ólöf Helga Pálsdóttir og Helena Sverrisdóttir fóru yfir frammistöðu Keflavíkur í þættinum Bónus Körfuboltakvöld.

„Mér fannst hún koma Keflavík inn í leikinn þegar Hamar/Þór byrjaði á sterku áhlaupi. Þegar Agnes kom inn á þá náði hún að slökkva í þeim, hún er góð skytta. Gaman að sjá systur með mismunandi skot, það eru tvenn pör af systrum þarna.“

„Þær eru svolítið að stóla á þetta“

Keflavík hefur verið þekkt fyrir gott uppeldisstarf í kvennaboltanum og á dögunum réði liðið tvo heimamenn til að stýra liðinu út tímabilið, þá Sigurð Ingimundarson og Jón Halldór Eðvaldsson.

„Mér finnst það sjarmerandi við þetta lið, þetta eru allt Keflvíkingar. Ég hitti Sigga Ingimundar og hann var bara eitt bros og sagði að þetta væri svo gaman.“

Klippa: Bónus Körfuboltakvöld kvenna - Systurnar úr Keflavík

Helena Sverrisdóttir fór yfir sóknarleik Keflavíkur en liðið tók þrjátíu og sjö þriggja stiga skot í leiknum.

„Þetta er mjög hæfileikaríkt lið. Anna Ingunn er ekkert að gera þetta í fyrsta skipti í ár. Þær hafa svolítið lifað á þessu. Thelma kláraði helling í úrslitunum í fyrra þegar hún var að setja þristana. Þær eru með þannig sett upp lið núna, það er enginn miðherji til að „pósta“ upp á. Þær eru svolítið að stóla á þetta.“

Alla umræðu Harðar, Ólafar Helgu og Helenu má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×