Sport

Stjarn­fræði­leg upp­hæð fyrir Super Bowl aug­lýsingu

Smári Jökull Jónsson skrifar
Það mun kosta sitt að auglýsa þegar Patrick Mahomes og félagar verða á skjánum.
Það mun kosta sitt að auglýsa þegar Patrick Mahomes og félagar verða á skjánum. Vísir/Getty

Philadelphia Eagles og Kansas City Chiefs mætast þann 9. febrúar í Super Bowl en leikurinn fer fram í New Orleans. Auglýsingar sem fylgja leiknum vekja alltaf mikla athygli en auglýsingaplássið kostar skildinginn.

Philadelphia Eagles og Kansas City Chiefs tryggðu sér í gær sæti í Super Bowl eftir sigra á Washington Commanders og Buffalo Bills. Lið Chiefs freistar þess í ár að vinna titilinn þriðja skiptið í röð en Philadelphia Eagles vann síðast árið 2017.

Þessi úrslitaleikur NFL-deildarinnar fær gríðarlega mikið áhorf í Bandaríkjunum á hverju ári og var leikur Kansas City Chiefs og San Francisco 49ers á síðasta ári vinsælasti sjónvarpsviðburður allra tíma en 123,7 milljónir áhorfenda horfðu á leikinn vestanhafs.

Auglýsingar í kringum leikinn vekja ávallt mikla athygli enda leggja auglýsendur mikið á sig til að ná athygli áhorfenda. Auglýsingaplássið er hvergi dýrara og þurfa auglýsendur að leggja um sjö milljónir dollara á borðið sem gerir tæpan milljarð íslenskra króna fyrir sekúndurnar þrjátíu.

Þetta svimandi háa verð fælir þó fyrirtækin ekki frá, nema síður sé. Öll auglýsingapláss í útsendingu frá Super Bowl seldust upp í nóvember en leikurinn verður sýndur á Fox sjónvarpsstöðinni.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×