Fótbolti

Dýr­mæt stig í súginn hjá Venezia

Smári Jökull Jónsson skrifar
Mikael Egill í baráttunni í leiknum í kvöld.
Mikael Egill í baráttunni í leiknum í kvöld. Vísir/Getty

Íslendingalið Venezia missti af góðu tækifæri að laga stöðu sína í botnbaráttu Serie A á Ítalíu í kvöld þegar liðið gerði jafntefli við Verona á heimavelli.

Mikael Egill Ellertssson var í byrjunarliði Venezia í leiknum en liðið var í næst neðsta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar fyrir leikinn í kvöld. Lið Verona og Lecce voru fjórum stigum ofar í sætunum og með sigri gat lið Venezia því minnkað muninn í botnbaráttunni.

Lengi vel leit út fyrir að svo yrði. Venezia komst yfir í fyrri hálfleik með marki Alessio Zerbin og staðan í hálfleik var 1-0.

Mikael Egill var síðan tekin af velli á 68. mínútu og sex mínútum síðar náðu gestirnir að jafna með marki Jackson Tchatchoua. Bjarki Steinn Bjarkason kom inn af bekknum skömmu eftir markið en heimaliðinu tókst ekki að komast yfir þrátt fyrir nokkra pressu undir lokin og liðin urðu því að sættast á 1-1 jafntefli.

Venezia er því áfram í næst neðsta sæti Serie A. Liðið er með 16 stig en Lecce og Verona í sætunum fyrir ofan með 20 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×