Enski boltinn

City búið að eyða meira en öll hin liðin til samans

Smári Jökull Jónsson skrifar
Omar Marmoush er nýgenginn til liðs við Manchester City fyrir tæplega 60 milljónir punda.
Omar Marmoush er nýgenginn til liðs við Manchester City fyrir tæplega 60 milljónir punda. Vísir/Getty

Tæp vika er þar til enski félagaskiptaglugginn lokar. Nú þegar hafa liðin í ensku úrvalsdeildinni eytt meira en tvöfaldri þeirri upphæð sem eytt var í janúar í fyrra.

Félagaskiptaglugginn í Englandi lokar mánudagskvöldið 3. febrúar en oftar en ekki er fjörið töluvert þegar líða fer að lokum gluggans. Fjölmargir leikmenn eru orðaðir við skipti á milli félaga og verður forvitnilegt að sjá hvaða breytingar verða á leikmannahópum liðanna á næstu dögum.

Nú þegar tæp vika er þar til félagaskiptaglugginn lokar hafa liðin í ensku úrvalsdeildinni nú þegar eytt rúmlega tvöfaldri þeirri upphæð sem eytt var allan janúargluggan í fyrra.

Í janúar árið 2024 eyddu félögin samtals 90 milljónum punda en á þessu ári hafa þau eytt 247 milljónum punda.

Langt frá metinu

Eitt lið sker sig úr hvað þetta varðar. Það eru meistarar Manchester City sem hafa eytt um 125 milljónum punda í þessum mánuði, meira en öll hin liðin í deildinni til samans.

City fékk varnarmanninn Abdukodir Khusanov frá Lens, framherjann Omar Marmoush frá Frankfurt og suðurameríkumennina Vitor Reis og Claudio Echeverri frá Palmeiras og River Plate. Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2018 sem félagið eyðir hárri fjárhæð í janúar en þá keypti City varnarmanninn Aymeric Laporte frá Athletic Bilbao.

Mest hafa ensku liðin eytt 840 milljónum punda í janúarglugganum en það var árið 2023 þegar Chelsea borgaði meðal annars tæplega 200 milljónir punda fyrir Enzo Fernandez og Mykhailo Mudryk. 

Enska deildin í sérflokki

Líkt og vanalega er það lið ensku deildarinnar sem eyða mest allra í Evrópu.

Liðin í Ligue 1 í Frakklandi hafa samtals borgað 106 milljónir fyrir leikmenn í janúar og helmingur þeirrar upphæðar eru 59 milljónir punda sem PSG borgaði fyrir Kvicha Kvaratskhelia.

Spænsku liðin hafa verið afskaplega róleg og aðeins eytt 2 milljónum punda, minna en League 1 félagið Huddersfield sem borgaði 4 milljónir punda fyrir framherjann Joe Taylor. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×