Skoðun

Fylkjum liði með kennurum og börnunum okkar

Þóra Andrésdóttir skrifar

Kennarar eru gulls ígildi. Þeir eru okkur dýrmætir. Þeir gæta að fjársjóði, börnunum okkar og mennta þau fyrir framtíðina.

Góðir kennarar geta skipt höfuðmáli, um framtíð barnanna okkar, hvort sem það eru forskóla/grunnskóla-eða framhaldsskólakennarar.

Við foreldrarnir munum mörg hver eftir því hvað kennarinn gat skipt miklu máli. Uppáhalds námsgreinar og árangur byggðist meira og minna á því að kennarinn var góður og hæfur kennari. Er það ekki það sem við viljum? Það besta fyrir börnin okkar og framtíðina.

Það er mikið talað um að börnum í dag, líði ekki nógu vel. Af hverju skyldi það vera? Það eru því miður sjálfsagt margar ástæður. Ein þeirra gæti verið mögulega óstöðugleiki, alltaf nýir og nýir kennarar, og eins annað starfsfólk, enginn sem þekkir börnin vel. Það getur ekki verið gott. Samt eiga kennarar að þekkja og vita getu hvers og eins barns, og kenna þeim hverju og einu eftir bestu getu. Til þess að það sé hægt, þarf að fækka nemendum í hverjum bekk, þau eru alltof mörg og geta þeirra svo mismunandi, á mismunandi þroskastigum, og skilja jafnvel ekki íslensku.

Til að halda í góðan kennara og annað starfsfólk í leik- og grunnskólum, þarf að borga þeim mannsæmandi laun. Eru börnin okkar í alvöru ekki þess virði?

Höfundur er (h)eldri borgari.




Skoðun

Sjá meira


×