Lífið

Stjórnar­and­staðan hræðist ekkert meðan ríkis­stjórnin þori ekki út úr húsi

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Stjórnarandstöðuþingmennirnir nítján sem mættu í Smiðjuna voru kampakátir ef marka má þessa mynd. Nema kannski Sigmundur Davíð sem er óvenju áhyggjufullur á svip.
Stjórnarandstöðuþingmennirnir nítján sem mættu í Smiðjuna voru kampakátir ef marka má þessa mynd. Nema kannski Sigmundur Davíð sem er óvenju áhyggjufullur á svip.

Þingmenn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Miðflokks héldu partý í gær til að stilla saman strengi fyrir átök komandi þingvetrar. Það var glatt á hjalla, áfengi á boðstólnum og karíókístuð þó sumir þingmenn hefðu ekki látið sjá sig.

Þing kom loksins saman á þriðjudaginn var eftir töluverða bið. Forsætisráðherra átti svo að vera með stefnuræðu sína á miðvikudag en henni var frestað vegna veðurs fram á mánudag. Stjórnarandstöðunni gafst því frábært tækifæri í gær til að hrista sig saman og brýna vopnin.

Á mynd sem Sigmundur Davíð, Sigríður Andersen, Áslaug Arna, Diljá Mist og Rósa Guðbjarts birtu sameiginlega á Instagram-síðum sínum af teitinu má sjá nítján af 27 þingmönnum stjórnarandstöðunnar.

Athygli vekur að þó nokkra þingmenn vantar á myndina, þar á meðal Vilhjálm Árnason, ritara Sjálfstæðisflokksins; Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins og Guðrúnu Hafsteinsdóttur sem hefur verið orðuð við framboð til formanns Sjálfstæðisflokksins. Þau hafa greinilega verið upptekin í öðru.

Eftir að fréttinn birtist var fréttastofu tjáð að Vilhjálmur hefði mætt í teitið en farið snemma til að fylgjast með Njarðvík keppa í körfubolta. Restin skemmti sér þó konunglega ef marka má myndir úr teitinu, átu snakk og vínber, drukku rauðvín og lite.

Áslaug Arna, Sigmundur Davíð og Jens Garðar eru klár í slaginn.

Eftir upphitun í Smiðju virðist hópurinn hafa skellt sér í karíókí þar sem allavega Áslaug Arna og Sigríður Andersen trylltu lýðinn. Inga Sæland þarf greinilega að fara að vara sig.

Áslaug Arna og Sigríður Andersen tóku lagið í karíókí.

Þingflokksformenn flokkanna þriggja létu sig ekki vanta.

Hildur Sverrisdóttir hjá Sjálfstæðisflokki, Ingibjörg Isaksen hjá Framsókn og Bergþór Ólason hjá Miðflokknum.

Nýliðar á þingi eru nokkrir, Snorri Másson og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir hjá Miðflokki eru orðin óþreyjufull eftir því að þing hefjist loksins.

Snorri Másson og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir bíða spennt eftir mánudeginum.

Sigmundur stillti sér upp með Áslaugu Örnu sem þykir ansi líkleg til að verða næsti formaður Sjálfstæðisflokksins. 

Áslaug Arna og Sigmundur Davíð skemmtu sér konunglega.

Þá deildi Sigríður Andersen hópmyndin með afdráttarlausum skilaboðum: „Ríkisstjórnin þorir ekki út úr húsi svo dögum skiptir. En stjórnarandstaðan hræðist ekkert.“

Sigríður Andersen er alltaf galvösk.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.