Körfubolti

Ís­lensku fé­lögin greiddu KKÍ 44 milljónir til að skrá leik­menn

Sindri Sverrisson skrifar
Íslensku félögin þurfa að greiða 280.000 krónur til KKÍ til að fá leikheimild fyrir hvern erlendan leikmann sem kemur til landsins.
Íslensku félögin þurfa að greiða 280.000 krónur til KKÍ til að fá leikheimild fyrir hvern erlendan leikmann sem kemur til landsins. vísir/Jón Gautur

Það hefur sjálfsagt ekki farið framhjá mörgum hve mikið líf var á félagaskiptamarkaðnum í íslenskum körfubolta þar til að glugginn lokaðist á dögunum. Samtals greiddu íslensku félögin um 44 milljónir króna í gjöld til KKÍ vegna félagaskipta og leikheimilda erlendra leikmanna.

Þetta kemur fram í skriflegu svari Hannes S. Jónssonar, framkvæmdastjóra Körfuknattleikssambands Íslands, við fyrirspurn Vísis.

Erlendir leikmenn hafa streymt til landsins í vetur og þar á meðal leikmenn með ferilskrár sem varla hafa sést á Íslandi. Til að mynda leikmenn sem spilað hafa í NBA-deildinni, EuroLeague og gríska landsliðinu, einu af bestu landsliðum Evrópu.

Fyrir hvern leikmann sem íslensku félögin fá til sín þurfa þau að greiða sérstakt gjald til KKÍ svo að þeir fái leikheimild.

Fyrir erlenda leikmenn er það 280.000 krónur, nema að hann sé þegar skráður á Íslandi en þá er gjaldið 190.000 krónur. Auk þess eru greiddar 17.000 krónur fyrir félagaskipti í úrvalsdeild og 1. deild karla og kvenna, og 2.000 krónur í öðrum meistaraflokkum og yngri flokkum.

Félagaskiptaglugginn í íslenskum körfubolta var opinn frá júní á síðasta ári og fram til síðustu mánaðamóta. Á þessum tíma vörðu íslensk félög 41.140.000 krónum í leikheimildir fyrir erlenda leikmenn og 2.631.000 krónum í félagaskipti.

Tæpar sex milljónir fara til FIBA

Vísir spurði jafnframt um það í hvað þessir peningar færu. Hluti af upphæðinni fer til FIBA. Nú þegar hafa rúmlega 4 milljónir af fyrrgreindum 41.140.000 krónum verið greiddar til FIBA en lokareikningur þaðan kemur í apríl og segir Hannes að gera megi ráð fyrir að FIBA fái 1,7 - 2 milljónir í viðbót, eða sem sagt hátt í sex milljónir króna.

Eftir standa þá um 38 milljónir króna sem KKÍ notar í sinn rekstur og nefnir Hannes að peningarnir fari í:

Að hluta að reka skrifstofu KKÍ en gera má ráð fyrir að vinna eingöngu við félagaskipti/leikheimildir sé hálft stöðugildi á ársgrundvelli. Það er mismikill tími sem fer í vinnu við leikheimildir erlendra leikmanna og er ýmislegt sem getur útskýrt það.

Að greiða niður kostnað við afreks/landsliðsstarfið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×