Innlent

Aug­lýsir eftir stjórnarfólki og breytir reglunum

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Vísir/Vilhelm

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur sett nýjar reglur um val á einstaklingum til stjórnarsetu í stærri ríkisfyrirtækjum, sem eiga að tryggja að tilnefndir stjórnarmenn veljist á grundvelli hæfni, menntunar eða reynslu.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Í reglunum segir að samsetning stjórna skuli vera með þeim hætti að tryggð sé næg þekking, kunnátta, fjölbreytni og reynsla einstaklinga sem þar eiga sæti. 

„Stjórnarmenn skulu vera óháðir fyrirtækinu og stjórnendum þess og gæta þurfi að því að ekki sé hætta á hagsmunaárekstrum vegna annarra starfa stjórnarmanna. Hvorki starfsmenn fyrirtækisins né kjörnir fulltrúar á Alþingi eða í sveitarstjórnum skulu tilnefndir í stjórnir ríkisfyrirtækja,“ segir í tilkynningunni.

Valnefnd tilnefnir tvo aðila fyrir hvert stjórnarsæti og velur ráðherra úr þeim hópi í stjórnirnar. Við samsetningu stjórnar skuli valnefnd líta til þess að innan hennar sé hæfileg breidd hvað varðar meðal annars menntun, faglegan bakgrunn, kyn, þekkingu og reynslu.

„Það skiptir miklu máli að stjórnir fyrirtækja í eigu ríkisins séu skipaðar hæfum einstaklingum með haldgóða reynslu eða góða þekkingu sem hæfir viðkomandi fyrirtæki. Því er mikilvægt að val á einstaklingum í stjórnir ríkisfyrirtækja fari fram á faglegum forsendum þannig að einstakir stjórnarmenn og stjórnin í heild þjóni sem best hagsmunum viðkomandi fyrirtækis,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, um reglurnar.

„Við höfum viðhaft svipað fyrirkomulag við val í stjórnir bankanna undanfarin ár með góðum árangri. Síðast en ekki síst er þessi leið í samræmi við leiðbeiningar OECD um góða stjórnarhætti þegar kemur að tilnefningu í stjórnir opinberra fyrirtækja.“

Auglýst hefur verið eftir áhugasömum einstaklingum til að gefa kost á sér í stjórnir stærri ríkisfyrirtækja sem eru: Landsvirkjun, Landsnet, Rarik, Orkubú Vestfjarða, Íslandspóstur, Isavia og Harpa.

Daði Már ræddi nýju reglurnar í Bítinu á Bylgjunni í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×