Lífið

Bitist um miða á ball vinstri sinnaðs ábreiðu­bands

Jakob Bjarnar skrifar
Bjartar sveiflur vopnaðir nikkum. Þeir eru ekki harmóníkkuhljómsveit en ljósmyndarinn Spessi var undir miklum áhrifum frá heimildarmynd sem hann gerði, um landsmót harmónikkuleikara, og Bjartar sveiflur slógu til. Og þeir sjá ekki eftir því.
Bjartar sveiflur vopnaðir nikkum. Þeir eru ekki harmóníkkuhljómsveit en ljósmyndarinn Spessi var undir miklum áhrifum frá heimildarmynd sem hann gerði, um landsmót harmónikkuleikara, og Bjartar sveiflur slógu til. Og þeir sjá ekki eftir því. spessi

Bjartar sveiflur er einhver athyglisverðasta og skemmtilegasta hljómsveit landsins. Hún heldur árlega svokallað „Prom-ball“ og var barist um miðar á ballið sem verður í kvöld.

„Já, því miður er uppselt,“ segir Arnar Ingi Viðarson trymbill en ballið hefst klukkan níu. Að sögn Arnars er þetta í fyrsta skipti sem Prom-ball sveitarinnar er haldið á Valentínusardegi í Gamla Bíói. Prom-böll Bjartra sveiflna, sem er árlegur viðburður, eru yfirleitt haldin í kringum jólin. Arnar telur víst að elskendur muni hópast á ballið en vinsældir hljómsveitarinnar hafa farið vaxandi.

Í Björtum sveiflum eru þeir Arnar Ingi Viðarsson, Kári Einarsson, Loji Höskuldsson, Friðrik Margrétarson Guðmundsson, Ólafur Daði Eggertsson og Magnús Dagur Sævarsson. Hljómsveitin varð eiginlega til fyrir tilviljun. Sameiginleg vinkona þeirra allra hóaði saman mönnum úr mismunandi indí-, metal- og krútthljómsveitum til að spila á afmælinu sínu. Svo vel tókst til að þeir héldu hópinn.

„Svo vatt þetta uppá sig. Við byrjuðum þarna í afmælisveislunni og okkur fannst fyndið að halda „prom“ sem er amerískt fyrirbæri sem við höfum algerlega farið varhluta af. Við veljum „prom-king“ og „prom-queen“ og allir glaðir.“

Fréttir af andláti sveitaballsins ótímabærar

Á hverju ári er mikill viðbúnaður, Bjartar sveiflur efna til sérstakrar ljósmyndatöku í tilefni af árlegu „prom-balli“ og að þessu sinni var það sjálfur Spessi sem valdist til þess verks. Sjálfur hafði Spessi farið til Ísafjarðar 2002 og gert heimildarmynd um landsmót harmónikkuleikara. Spessi er enn undir miklum áhrifum frá þessari mynd og Bjartar sveiflur féllu fyrir hugmyndinni. Þeir eru nú mjög uppteknir af þessu fyrirbæri.

„Ég veit ekki hvort ég má segja þetta en við erum vinstri sinnað „coverband“,“ segir Arnar Geir.

(Aldrei að segja við blaðamann að þú megir ekki segja eitthvað, hann hefur það eftir.)

„Við erum að fara að spila á árshátíð hjá RÚV, við verðum í einhverjum brúðkaupum í sumar, einhverjum opnunum, afmælishátíðinni hjá Nýló … já, við erum ekkert mikið að fara úr 101. Á meðan er verið að biðja okkur að koma fram, þá er gaman.“

Og Arnar Ingi lofar leynigesti á ballið sem því miður er uppselt á. Og búið að loka gestalistanum.

Arnar Ingi segir Bjartar sveiflur vilja halda uppi merkjum sveitaballamenningar sem er vitaskuld meira en að segja það; þetta er fyrirbæri sem margir hafa lýst dautt. Addi Fannar í Skímó kvað uppúr um það þegar Skítamórall hélt upp á 20 ára afmæli sveitarinnar: „Sveitaballamenningin held ég samt að sé dauð, við rétt náðum í skottið á henni,“ sagði Addi í samtali við Fréttablaðið í október 2009.

En Arnar Ingi blæs á þetta. Hann segir hljómsveitina halda í hávegum það þegar menn koma saman og gera sér glaðan dag. Og ekki er nú verra ef það eru hljómsveitir sem notast við jaðarhljóðfæri. „Við viljum sýna þeim virðingu,“ segir Arnar en tekur þó fyrir að um sé að ræða harmónikkuhljómsveit.

Eru ekki frægir sjálfir en fá fræga gesti

Síðasta ár tók Ragnar Kjartansson vel valdar ábreiður af sínum ferli sem ásamt Purple Rain með Prince enda eru vel valdar paranir laga og gestasöngvarar eitthvað sem Bjartar sveiflur leggja mikla vinnu í útfæra og hanna rétt.

„Við erum ekki frægir og þekkjum ekkert frægt fólk, svo að það er eingöngu undir blíðlega skrifuðum instagram skilaboðum komið hvort við fáum gestasöngvarana með okkur í lið eða ekki. 

Síðast fengum við Ragnar sem var mikil dásemd, sem og hjartaknúsarann Hreim í Land og sonum sem tók þungavigtarlagið Örmagna af mikilli innlifun ásamt þrumuslagarann Vöðvastæltur — lagapörun sem kannski lýsir grátbroslegum heimi þáverandi forsprakka „boy-banda“ í tvíeggja sverðinu sem var sveitaballarfárið í upphafi 21. aldarinnar,” segir Arnar Ingi og vill vera skáldlegur.

Meðal annarra gestasöngvara frá Prom-kvöldum Bjartra sveifla má nefna Ásdísi Maríu, Nönnu Bryndísi, Selmu Björnsdóttur, Eygló Höskuldsdóttur, Rakel Mjöll, en Arnar Geir er ófáanlegur til að gefa upp með hverjir stigi á sviðið með þeim þetta árið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.