Innlent

Þurfi ekki að spyrja að leiks­lokum ef gámurinn fellur

Lovísa Arnardóttir skrifar
Svona líta bílarnir út. Bílstjórinn situr í að framan en gafflarnir lyfta að aftan. Terra varar við því að fólk gangi undir þegar tæming fer fram.
Svona líta bílarnir út. Bílstjórinn situr í að framan en gafflarnir lyfta að aftan. Terra varar við því að fólk gangi undir þegar tæming fer fram. Terra

Terra umhverfisþjónusta varar við því að fólk gangi undir gáma þegar bílstjórar þeirra vinna við að tæma þá. Í tilkynningu kemur fram að bílstjórar Terra umhverfisþjónustu hafi undanfarið orðið varir við það að fólk gangi undir gáma þegar verið er að hífa þá upp til að tæma. Markaðsstjóri segir málið alvarlegt og þau vilja vara við þessari hegðun.

„Það þarf ekki að spyrja að leikslokum ef eitthvað kemur upp á og gámurinn fellur á viðkomandi. Umgöngumst stór ökutæki með varúð og förum aldrei undir hluti sem verið er að lyfta eða hífa,“ segir í tilkynningu frá Terra í gær.

Gámarnir sem um ræðir.Terra

Erna Björk Häsler markaðsstjóri Terra segir þetta ekki eiga við þegar bílarnir eru að hífa upp djúpgámana til að tæma þá heldur eigi þetta frekar við þegar bílarnir taki minni gáma með göfflum að aftan til að tæma þá ofan í bílinn.

„Bílarnir eru með gafla sem þeir nota til að lyfta og sturta aftur fyrir sig,“ segir Erna Björk.

Geta lítið gert einir í bílnum

Í þessum bílum þurfi bílstjórarnir að sitja inni í bílnum á meðan bílstjórar sem tæmi djúpgáma standi úti og geti gripið fyrr inn í.

„Bílstjórinn er einn og getur lítið gert þegar einhver hleypur undir. Nú er þetta búið að gerast það oft að við ákváðum að setja út þessa færslu til að vara við þessu. Þannig fólk geti talað við börn og aðra. Gámarnir eru auðvitað svakalega þungir og sérstaklega þegar þeir eru fullir. Svo er þetta ágætis hæð sem er verið að lyfta þeim í. Eftir að við vorum komin með nokkrar tilkynningar þá bað öryggisstjóri að það yrði eitthvað gert. Svo fólk átti sig á því hversu alvarlegt það er. Það þarf ekki nema nokkrar sekúndur. Búnaðurinn getur klikkað og þetta gæti dottið.“

Bæði börn og fullorðnir

Hún segir bílstjórana bæði hafa staðið börn og fullorðna að því að hlaupa undir gámana.

„Börnin kannski fatta ekki hversu hættulegt þetta er. En við viljum minna á þetta því okkur finnst það okkar ábyrgð að upplýsa um það þegar eitthvað svona er að koma ítrekað upp. Það skiptir okkur máli.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×