Innlent

Þrjú bítast um formannsstöðuna hjá Sið­mennt

Jakob Bjarnar skrifar
Inga Auðbjörg Straumland hefur verið formaður Siðmenntar síðastliðinn sex ár en hún sækist ekki eftir endurkjöri á aðalfundinum.
Inga Auðbjörg Straumland hefur verið formaður Siðmenntar síðastliðinn sex ár en hún sækist ekki eftir endurkjöri á aðalfundinum. bylgjan

Þau Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Sigurður Rúnarsson og Svanur Sigurbjörnsson sækjast öll eftir formannsstöðunni hjá Siðmennt en kosið verður á laugardaginn 1. mars.

Guðrún Þóra Arnardóttir framkvæmdastjóri Siðmenntar segir að það liggi alls ekki fyrr hver verður hlutskarpastur því þó Arndís Anna sé þekktust meðal þeirra sem bjóða sig fram er Sigurður varaformaður og Svanur er þekktur af áralöngu starfi innan Siðmenntar.

Sigurður Rúnarsson sækist eftir formennsku.

Mikið verður um dýrðir hjá Siðmennt 1. mars en þá verður heill dagur helgaður húmanisma þar sem Siðmenntarþing og aðalfundur fer fram kl. 10:00-17:00 í sal Nauthóls að Nauthólsvegi 106, 101 Reykjavík.

Fyrir hádegi verður húmanísk bókmenntahátíð þar sem fram koma Bjarni Snæbjörnsson, Bragi Páll Sigurðarson, Hope Knútsson og Linda Vilhjálmsdóttir.

Guðrún segir starf Siðmenntar vaxandi og nú eru skráðir rúmlega sex þúsund og eitt hundrað þar. Hún segir áhuga fyrir því að auka við þjónustuna, meðal annars hvað sálgæslu varðar og segir hún stefna í spennandi umræðu þar um á degi Siðmenntar. 

Eftir hádegi er fyrirhugað sérstakt málþing um sálgæslu. Meðal þátttakenda eru Inga Auðbjörg Straumland, formaður Siðmenntar, fulltrúi sálgæsluteymis presta og djákna á Landspítalanum og þá verður birt myndbandserindi frá Lindsay de Wal frá Humanists UK en hún er einnig fyrsti húmanistinn til að leiða sálgæsluteymi á breskum spítala.

Í kjölfarið af málþinginu, eða kl. 14:00, verður aðalfundur Siðmenntar. Á aðalfundi fer fram kosning til formanns, aðalstjórnar og varastjórnar. Inga Auðbjörg Straumland hefur verið formaður Siðmenntar síðastliðinn sex ár en hún sækist ekki eftir endurkjöri á aðalfundinum.

Borist hafa þrjú framboð til formanns eins og áður sagði, fimm framboð í aðalstjórn og þrjú í varastjórn.

Í framboði til aðalstjórnar eru:

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir

Erla Sigurlaug Sigurðardóttir

Elsa Björg Magnúsdóttir

Kristrún Ýr Einarsdóttir

Sigurður Rúnarsson

Í framboði til varastjórnar eru:

Árni Grétar Jóhannsson

Helga Bára Bragadóttir

Mörður Árnason




Fleiri fréttir

Sjá meira


×