Innlent

Reynt til þrautar í Karp­húsinu og Inga Sæ­land svarar fyrir sig í þinginu

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Bylgjan hádegi

Í hádegisfréttum fjöllum við um samningafund kennara og viðsemjenda þeirra sem nú stendur yfir í Karphúsinu.

Að óbreyttu hefjast verkfallsaðgerðir í nokkrum framhaldsskólum landsins á morgun, náist ekki að semja fyrir þann tíma. 

Einnig kíkjum við niður á þing þar sem Inga Sæland formaður Flokks fólksins varðist spurningum þingmanna úr pontu undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir. Styrkjamálið svokallaða bar þar meðal annars á góma. 

Einnig verður rætt við menntamálaráðherra sem segir að kennarar þurfi meiri stuðning inn í skólastofuna.

Í íþróttafréttum verður farið yfir hinn mikilvæga leik körfuboltalandsliðsins sem fram fer í dag en þar getur liðið tryggt sér farseðilinn á EM í körfubolta.

Klippa: Hádegisfréttir 20. febrúar 2025.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×