Fótbolti

Fyrsta ís­lenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hákon Arnar Haraldsson skoraði tvö mörk fyrir Lille í frönsku deildinni en því hafði Íslendingur ekki náð í þessari deild í meira en fjörutíu ár eða síðan Teitur Þórðarson gerði það vorið 1982.
Hákon Arnar Haraldsson skoraði tvö mörk fyrir Lille í frönsku deildinni en því hafði Íslendingur ekki náð í þessari deild í meira en fjörutíu ár eða síðan Teitur Þórðarson gerði það vorið 1982. Getty/Jean Catuffe/Jeff Vinnick

Hákon Arnar Haraldsson varð í gær aðeins fjórði íslenski knattspyrnumaðurinn sem nær því að skora meira en eitt mark í leik í frönsku deildinni, Ligue 1.

Hákon skoraði þá bæði mörkin í 2-1 sigri Lille á Mónakó. Hákon kom sínu liði tveimur mörkum yfir með því að skora tvisvar í fyrri hálfleiknum, það fyrra á 22. mínútu en það síðara á 42. mínútu.

Það voru í gær liðin 42 ár, níu mánuðir og átján dagar frá síðustu tvennu íslensk leikmanns í frönsku A-deildinni.

Síðasta tvenna var líka í sömu borg

Sá tvennu skoraði Teitur Þórðarson einmitt á móti Lille þegar hann var leikmaður Lens. Seinnna markið hans í leiknum var einmitt það nítjánda sem hann skoraði fyrir Lens í frönsku deildinni tímabilið 1981-82.

Teitur kom Lens í 1-0 á 26. mínútu og skoraði síðan þriðja mark liðsins á 73. mínútu. Leikurinn var spilaður á Stade Grimonprez-Jooris, heimavelli Lille.

Lille hætti að spila á þeim velli árið 2004. Lille spilaði leikinn í gær á Stade Pierre-Mauroy sem hefur verið heimavöllur liðsins frá 2012.

Síðustu tvær tvennur íslensks leikmanns í frönsku deildinni hafa því báðar litið dagsins ljós í borginni Lille.

Næstur á eftir Platini

Teitur skoraði alls fimm tvennur þetta magnaða tímabil sitt þegar hann endaði sem fjórði markahæsti leikmaður frönsku deildarinnar á eftir þeim Delio Onnis, Andrzej Szarmach og sjálfum Michel Platini sem skoraði þremur mörkum meira en Teitur.

Karl Þórðarson skoraði eina tvennu fyrir Laval í apríl árið 1981 en þá voru liðin 29 ár frá íslenskri tvennu.

Sú tvenna var í raun þrenna og hana skoraði Albert Guðmundsson tímabilið 1951-52 en alls skoraði Albert sex sinnum meira en eitt mark í leik í frönsku deildinni.

Ótrúleg vika Alberts

Albert skoraði á sínum tíma fjórar tvennur og tvær þrennur fyrir Racing Club í frönsku deildinni. Hann er eini íslenski leikmaðurinn sem hefur náð því að skora þrennu í frönsku deildinni.

Albert átti eina ótrúlegustu viku íslensks leikmanns á erlendri grund haustið 1950. Hann skoraði þá fimm mörk á sjö dögum. Tvö mörk á móti Sochaux 27. ágúst 1950 og þrennu á móti Roubaix-T. viku síðar, 3. september 1950.

Albert Guðmundsson leikur sér með boltann á efri árum.Mynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur
  • Íslendingar með meira en eitt mark í einum leik í frönsku deildinni:
  • 28. mars 1950
  • Albert Guðmundsson 2 mörk fyrir Racing Club á móti Sochaux
  • 27. ágúst 1950
  • Albert Guðmundsson 2 mörk fyrir Racing Club á móti Sochaux
  • 3. september 1950
  • Albert Guðmundsson 3 mörk fyrir Racing Club á móti Roubaix-T.
  • 17. desember 1950
  • Albert Guðmundsson 2 mörk fyrir Racing Club á móti Séte
  • 26. ágúst 1951
  • Albert Guðmundsson 2 mörk fyrir Racing Club á móti Saint-Étienne
  • 20. janúar 1952
  • Albert Guðmundsson 3 mörk fyrir Racing Club á móti Lyon
  • 8. apríl 1981
  • Karl Þórðarson 2 mörk fyrir Laval á móti Auxerre
  • 7. ágúst 1981
  • Teitur Þórðarson 2 mörk fyrir Lens á móti Metz
  • 25. september 1981
  • Teitur Þórðarson 2 mörk fyrir Lens á móti Auxerre
  • 20. febrúar 1982
  • Teitur Þórðarson 2 mörk fyrir Lens á móti Sochaux
  • 27. febrúar 1982
  • Teitur Þórðarson 2 mörk fyrir Lens á móti Brest
  • 4. maí 1982
  • Teitur Þórðarson 2 mörk fyrir Lens á móti Lille
  • 22. febrúar 2025
  • Hákon Arnar Haraldsson 2 mörk fyrir Lille á móti Mónakó



Fleiri fréttir

Sjá meira


×