Fótbolti

Á­fall fyrir Napoli í titilbaráttunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Assane Diao fagnar sigurmarki sínu með liðsfélögum sínum hjá Como en þetta mark spillti heldur betur fyrir Napoli í toppbaráttunni.
Assane Diao fagnar sigurmarki sínu með liðsfélögum sínum hjá Como en þetta mark spillti heldur betur fyrir Napoli í toppbaráttunni. Getty/Marco Luzzani

Napoli tapaði óvænt í dag á móti Como í ítölsku A-deildinni í fótbolta og mistókst þar með að komast aftur á toppinn. Como vann leikinn 2-1.

Eftir leikinn er Napoli einu stigi á eftir Internazionale sem vann nauman 1-0 sigur á Genoa í gær.

Napoli liðið hafði gert jafntefli í þremur leikjum í röð en þetta var fyrsti tapleikur liðsins í deildinni síðan 8. desember síðastliðinn.

Cesc Fàbregas er þjálfari Como, sem var ellefu sætum neðar en Napoli í töflunni.

Como komst í 1-0 á sjöundu mínútu eftir að Amir Rrahmani skoraði sjálfsmark en Giacomo Raspadori jafnaði metin aðeins tíu mínútum síðar.

Sigurmarkið skoraði síðan Assane Diao á 77. mínútu eftir stoðsendingu frá Nico Paz.

Como var að vinna sinn annan leik í röð eftir að hafa unnið 2-0 sigur á Fiorentina í leiknum á undan. Fram að honum hafði Como aðeins unnið einn af sex leikjum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×