Íslenski boltinn

Síð­hærði Fær­eyingurinn snýr aftur norður

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jóan Símun Edmundsson ætlar að spila með KA í Bestu deildinni í sumar.
Jóan Símun Edmundsson ætlar að spila með KA í Bestu deildinni í sumar. KA

Færeyingurinn Jóan Símun Edmundsson hefur samið á ný við KA og mun spila með liðinu í Bestu deild karla í fótbolta í sumar.

KA segir á miðlum sínum að félagið sé búið að endurheimta þennan 33 ára sókndjarfra miðjumann sem þykir einhver besti leikmaður í sögu Færeyja. Jóan hefur leikið 94 landsleiki fyrir þjóð sína og gert í þeim átta mörk.

Undanfarið hefur Jóan Símun leikið með liði KF Shkupi í Makedóníu en hann kemur samt til KA-manna á frjálsri sölu.

KA leikur á ný í Evrópukeppni í sumar og ljóst að reynsla Jóans mun hjálpa liðinu í þeirri baráttu auk leikjanna í Bestu deildinni og í titilvörn liðsins í Mjólkurbikarnum.

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, þekkir Jóan vel en hann lék með honum í liði OB í Danmörku á sínum tíma. Jóan hóf feril sinn með B68 í Færeyjum og hefur átt flottan feril þar sem hann hefur leikið með stórum liðum eins og Newcastle, Viking, Fredericia, Vejle, OB, Arminia Bielefeld og Beveren áður en hann kom fyrst til KA.

Jóan Símun lék tíu deildarleiki með KA sumarið 2023 en hann var með tvö mörk og eina stoðsendingu í þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×